Ferill 410. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 589 — 410. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um innleiðingu tilskipunar um aðgengi vefsetra opinberra aðila og smáforrita þeirra fyrir fartæki.
Frá Ingu Sæland.
1. Hvenær stendur til að leggja fram tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 59/2021 um að fella inn í EES-samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/2102 um aðgengi vefsetra opinberra aðila og smáforrita þeirra fyrir fartæki?
2. Hvernig miðar vinnu við innleiðingu tilskipunarinnar? Eru stjórnvöld að vinna að innleiðingunni í samráði við Blindrafélagið, Öryrkjabandalag Íslands eða önnur hagsmunasamtök?
3. Hvenær er áætlað að ljúka við innleiðinguna vegna nýrra opinberra vefsetra í fyrsta lagi, vegna eldri opinberra vefsetra í öðru lagi og vegna smáforrita opinberra aðila fyrir fartæki í þriðja lagi í ljósi þess að samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar þarf að ljúka innleiðingu fyrir febrúar 2022 vegna nýrra opinberra vefsetra, fyrir febrúar 2023 vegna eldri opinberra vefsetra og fyrir ágúst 2023 vegna smáforrita opinberra aðila fyrir fartæki?
Skriflegt svar óskast.