Ferill 413. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 592 — 413. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um þjónustu við trans börn og ungmenni.
Frá Evu Dögg Davíðsdóttur.
1. Hver er meðalbiðtími trans barna og ungmenna eftir þjónustu transteymis barna- og unglingageðdeildar Landspítala, BUGL?
2. Hver er meðalbiðtími trans ungmenna sem ná 18 ára aldri á meðan þau bíða eftir þjónustu frá transteymi geðdeildar?
3. Hvernig er tryggð samfella í þjónustu milli transteymis BUGL og transteymis geðdeildar?
4. Telur ráðherra koma til greina að transteymi geðdeildar og BUGL geri þjónustusamninga við utanaðkomandi aðila til þess að flýta fyrir meðferð og tryggja fullnægjandi sérþekkingu innan málaflokksins?
Skriflegt svar óskast.