Ferill 428. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 609  —  428. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um Hellisheiði.

Frá Þorgerði K. Gunnarsdóttur.


     1.      Telur ráðherra að Vegagerðin hafi náð að halda Hellisheiði opinni eins og kostur var það sem af er vetri eða hyggst ráðherra skoða hvað hægt er að gera betur svo að heiðin lokist ekki ítrekað eins og raunin hefur verið?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að göng undir Hellisheiði verði skoðuð betur?