Ferill 432. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 615  —  432. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um græna utanríkisstefnu.


Flm.: Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Logi Einarsson, Helga Vala Helgadóttir, Oddný G. Harðardóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Dagbjört Hákonardóttir, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Þorgerður K. Gunnarsdóttir.


    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni, að höfðu samráði við Alþingi, að útfæra græna utanríkisstefnu. Aukin áhersla verði lögð á aðgerðir til að draga úr loftslagsbreytingum, á eflingu samstarfs við ríki sem eru í fararbroddi í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og á málflutning á því sviði á alþjóðavísu auk þess sem grænar áherslur verði lagðar til grundvallar í ólíkum þáttum utanríkisstefnunnar.
    Við mótun grænnar utanríkisstefnu Íslands verði m.a. ráðist í eftirfarandi aðgerðir:
     1.      Skipaður verði sendiherra loftslagsmála sem samhæfi stefnu og skilaboð Íslands erlendis um loftslagsmál, hafi yfirumsjón með upplýsingagjöf og fari með samhæfingarhlutverk innan Stjórnarráðsins um aðild og framkvæmd íslenskra stjórnvalda á aðgerðum gegn loftslagsbreytingum á alþjóðavettvangi. Þá gegni sendiherrann lykilhlutverki í því að kynna stefnu ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum á erlendri grundu.
     2.      Sérstök sendiráð Íslands verði útnefnd græn sendiráð þar sem megináherslur og verkefni viðkomandi sendiherra og sendiráða verði á sviði loftslags- og umhverfismála.
     3.      Stofnuð verði sérstök umhverfis- og loftslagsskrifstofa í utanríkisráðuneyti og henni tryggður mannafli og fjármunir. Skrifstofunni verði falið að efla alþjóðlega samvinnu um loftslagsmál ásamt upplýsingagjöf um þau, bæði á alþjóðavettvangi og innan lands, og að starfa með öðrum ráðuneytum að framkvæmd alþjóðlegra aðgerða Íslands í loftslagsmálum og að þátttöku á alþjóðlegum ráðstefnum og fundum um málefnin. Umhverfis- og loftslagsskrifstofa utanríkisráðuneytis hafi einnig með höndum útfærslu loftslagsstefnu Stjórnarráðsins að því er snertir utanríkisráðuneyti og starfsemi þess um allan heim.
     4.      Stefna um græna fríverslun og alþjóðaviðskipti verði mörkuð og skýrð og ávallt hugsuð og unnin út frá loftslagsmarkmiðum og alþjóðlegum skuldbindingum í umhverfis- og loftslagsmálum. Meiri áhersla en nú verði lögð á umhverfismál við gerð fríverslunarsamninga. Efling og aðstoð utanríkisráðuneytis vegna viðskiptasambanda íslenskra fyrirtækja og fjárfestinga verði ávallt metin út frá loftslagsmarkmiðum og umhverfisáherslum.
     5.      Stefna Íslands í þróunarsamvinnu verði skipulögð og skýrð út frá loftslagsmarkmiðum Parísarsamkomulagsins, heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og sem hluti af aðgerðaáætlun Íslands í loftslagsmálum. Fjárframlög til Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna verði aukin og alþjóðleg og tvíhliða samvinna verði efld innan græna hagkerfisins með aðstoð eða aðkomu utanríkisráðuneytis.
     6.      Stefna í einstökum þáttum alþjóðastarfs á borð við norðurslóðastefnu Íslands og stefnu í málefnum hafsins verði uppfærð reglulega með tilliti til alvarlegrar stöðu í loftslagsmálum sem bregðast þarf hratt við.

Greinargerð.

    Tillaga þessi var áður lögð fram á 150. löggjafarþingi (568. mál). Tillagan var endurflutt á 151. löggjafarþingi (33. mál) með nokkrum efnislegum breytingum þar sem tekið var tillit til umsagnar sem barst um málið og er nú endurflutt óbreytt.
    Undanfarin ár hafa umhverfismál skipað æ mikilvægari sess í stjórnmálum víða um heim. Í ljósi hraðra loftslagsbreytinga þarf að grípa til róttækra kerfisbreytinga og aðgerða á heimsvísu til að sporna gegn enn verri afleiðingum loftslagsbreytinga af mannavöldum eins og hlýnun jarðar, öfgum í veðurfari, neikvæðum áhrifum á gróðurfar og lífríki, súrnun sjávar og hækkandi sjávarstöðu. Mikilvægt er að stefna stjórnvalda í utanríkismálum taki mið af þessari þróun og sé skýr.
    Umhverfismálin teygja anga sína víða enda tengjast þau beint og óbeint fjölbreyttum samfélagslegum málefnum á borð við öryggismál og stríðsátök, efnahag, samgöngur, fólksflutninga, jöfnuð og kynjajafnrétti, svo að nokkur dæmi séu nefnd. Þar að auki er ljóst að loftslagsbreytingar eru orðnar ein helsta ógn við mannréttindi í heiminum líkt og mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, Michelle Bachelet, hefur lýst yfir. Hefur hún m.a. bent á það mat Sameinuðu þjóðanna að um 40% borgarastyrjalda í heiminum undanfarin 60 ár megi rekja til hnignunar umhverfis (e. environmental degradation). Í ljósi umfangs og mikilvægis umhverfismála á alþjóðavísu og brýnnar nauðsynjar alþjóðasamstarfs í loftslagsmálum telja flutningsmenn tillögunnar að einn veigamesti þátturinn í utanríkisstefnu Íslands eigi að vera að stuðla að því að umhverfismál verði í forgangi. Þar getur Ísland leikið mikilvægt hlutverk, því að þrátt fyrir smæðina hefur landið haft mjög jákvæð áhrif á þróun mála á alþjóðavettvangi eins og sannaðist með eftirtektarverðri framgöngu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna.
    Telja má góðar líkur á því að aukin áhersla á græn málefni í utanríkisstefnu Íslands hefði jákvæð áhrif innan sem utan landsteinanna. Til að mynda gæti frekari miðlun á þeirri þekkingu sem er þegar til staðar hérlendis til annarra landa skipt sköpum í orkuskiptum frá jarðefnaeldsneyti og kolum í umhverfisvænni valkosti eins og jarðvarma. Á sama tíma mætti ætla að eftirspurn eftir grænum lausnum víða um heim hvetti til frekari nýsköpunar á sviði grænna lausna hérlendis með tilheyrandi jákvæðum áhrifum á umhverfi, efnahag og samfélag. Slíkt væri í anda alþjóðaskuldbindinga Íslands samkvæmt rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar og samkvæmt Parísarsamkomulaginu.
    Alþjóðasamstarf, þ.m.t. þróunarsamvinna, gegnir lykilhlutverki í umhverfismálum. Má nefna að stuðningur við menntun kvenna í þróunarlöndum er öflug aðgerð til að sporna við loftslagsbreytingum sem stuðlar að því að hægt verður að ná mörgum af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Norðurlönd hafa gert sig gildandi á alþjóðavettvangi í umhverfis- og loftslagsmálum í utanríkisstefnu sinni og gera flutningsmenn ráð fyrir því að litið verði til norrænna ríkja og utanríkisstefnu þeirra við útfærslu á grænni utanríkisstefnu.
    Dönsk yfirvöld hafa til að mynda mótað græna útflutnings- og viðskiptastefnu, eins og lesa má um í nýrri stefnu dönsku ríkisstjórnarinnar um utanríkis- og öryggismál sem lögð var fram í janúar 2022, og hafa þau útbúið stefnu um aukna sjálfbærni fyrir utanríkisþjónustu landsins og græna utanríkisstefnu. Utanríkisráðuneyti Danmerkur hefur einnig ráðist í verkefni til að koma á framfæri dönskum lausnum í loftslagsmálum og aðgerðum til að auka sjálfbærni. Fyrir tveimur árum var skipað í embætti sendiherra loftslagsmála, útnefnd hafa verið tuttugu sendiráð til að stuðla að framgangi danskra grænna lausna úti um allan heim, komið hefur verið á fót grænni skrifstofu sem tileinkuð er „grænum ríkjasamskiptum“ (e. green diplomacy).
    Auk þess hyggst ríkisstjórn Danmerkur leggja áherslu á græn verkefni í þróunarsamvinnu líkt og fram kom í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar landsins fyrir árið 2020 þar sem veittar voru um 600 millj. danskra króna til málaflokksins. Í fjárlögum fyrir árið 2022 ákváðu dönsk stjórnvöld að til viðbótar við þau 0,7% af vergum þjóðartekjum sem fara í þróunaraðstoð Dana yrðu veittar 100 millj. danskra króna í framlög til þróunarlanda vegna loftslagsmála.
    Þá má nefna að í þróunarsamvinnustefnu sænskra yfirvalda er m.a. lögð áhersla á umhverfislega sjálfbærni; sjálfbærni loftslags, sjávar og vatnsbóla og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda. Einnig er stór hluti þróunarsamvinnustefnu Finnlands tileinkaður loftslagsmálum í þróunarríkjum, bæði fyrir tilstilli sjóða og tvíhliða þróunarsamvinnuverkefna. Dæmi um alþjóðleg verkefni sem finnsk yfirvöld hafa tekið þátt í eru verkefni tengd veðurspám á veðurstofu Finnlands og sjálfbærari skógrækt.
    Aðgerðirnar sex sem hér eru lagðar til byggjast að mörgu leyti á aðgerðum og áherslum Norðurlanda í þessum málaflokki. Að mati flutningsmanna er mikilvægt að gætt verði vandlega að því við útfærslu grænnar utanríkisstefnu að ekki verði boðið upp á grænþvott, með fögrum fyrirheitum án aðgerða, heldur verði um að ræða raunverulega stefnumörkun með skýrum, markmiðssettum aðgerðum.