Ferill 351. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 625 — 351. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um upplýsingastefnu.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvar birtir forsætisráðherra upplýsingastefnu til fimm ára?
2. Hvernig hefur samráð vegna upplýsingastefnu verið við:
a. almenning,
b. Blaðamannafélag Íslands,
c. Samband íslenskra sveitarfélaga,
d. skjalaverði opinberra skjalasafna og
e. vísinda- og háskólasamfélagið?
Ekki hefur verið gefin út heildstæð upplýsingastefna af hálfu stjórnvalda. Dregist hefur að setja slíka stefnu en ýmsar umbætur í sama anda hafa þó náð fram að ganga á síðastliðnum árum. Segja má að gildandi stefna birtist í lögum, reglum og framkvæmd og að hún hafi verið að þróast í átt til aukins upplýsingaréttar og gagnsæis. Í stjórnarsáttmála þáverandi ríkisstjórnar frá árinu 2017 var kveðið á um að ríkisstjórnin legði áherslu á góð vinnubrögð, opna stjórnsýslu og gagnsæi. Kappkostað yrði að miðla upplýsingum um ákvarðanir og ferli sem vörðuðu hagsmuni almennings með aðgengilegum hætti. Á því kjörtímabili voru samþykkt fjölmörg mál til þess að stuðla að auknu aðgengi upplýsinga. Núverandi ríkisstjórn mun halda áfram að vinna að þessum markmiðum.
Meðal verkefna í þágu aukins upplýsingaréttar má nefna að í september 2017 var opnuð vefsíðan opnirreikningar.is með það að markmiði að auka gagnsæi og aðgengi almennings að fjárhagsupplýsingum ríkisins. Á vefnum er unnt að skoða upplýsingar um greidda reikninga ráðuneyta og stofnana úr bókhaldi ríkisins.
Með breytingum á upplýsingalögum árið 2019 var sett á fót staða ráðgjafa stjórnvalda um upplýsingarétt sem hefur m.a. það hlutverk að stuðla að bættri upplýsingagjöf hins opinbera. Með breytingunum var einnig kveðið á um hámarksafgreiðslutíma úrskurðarnefndar um upplýsingamál, auk þess sem nefndinni var veitt heimild til að kveða upp úrskurð, að beiðni kæranda, hafi stjórnvald ekki afgreitt gagnabeiðni innan 30 virkra daga frá móttöku hennar. Þá var starfsaðstaða úrskurðarnefndar um upplýsingamál bætt með ráðningu ritara nefndarinnar í fullt starf, auk þess sem ráðið hefur verið tímabundið í fullt stöðugildi ritara til aðstoðar.
Einnig má nefna að hinn 1. janúar 2021 tók gildi breyting á upplýsingalögum, nr. 140/2012, varðandi birtingu upplýsinga að frumkvæði stjórnvalda. Skv. 2. mgr. 13. gr. laganna er ráðuneytum í Stjórnarráði Íslands nú skylt að birta upplýsingar úr málaskrám sínum með rafrænum hætti. Að lágmarki ber að birta skrá yfir mál sem eru til meðferðar í ráðuneyti í tilefni af innsendu eða útsendu erindi þar sem tilgreint er málsnúmer og heiti máls. Listi yfir mál úr málaskrá ráðuneyta eru birt á vef Stjórnarráðsins.
Loks má benda á setningu laga um varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands, nr. 64/2020, sem tóku gildi 1. janúar 2021 en samkvæmt lögunum skal birta opinberlega upplýsingar um fjárhagslega hagsmuni, aukastörf og gjafir æðstu stjórnenda í Stjórnarráði Íslands og aðstoðarmanna ráðherra. Þá skal birta lista yfir hagsmunaverði sem tilkynnt hafa um það hlutverk sitt. Framangreindar upplýsingar eru birtar á vef Stjórnarráðsins.
Þess ber að geta að skipaður hefur verið starfshópur til að móta upplýsingastefnu stjórnvalda í samræmi við 3. mgr. 13. gr. upplýsingalaga og mun starfshópurinn skila tillögum sínum til forsætisráðherra í síðasta lagi 1. maí 2022. Samráð verður haft við almenning, Blaðamannafélag Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, skjalaverði opinberra skjalasafna og háskóla- og vísindasamfélagið.