Ferill 217. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 641 — 217. mál.
Svar
félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um nýgengi örorku.
1. Hversu margir einstaklingar fengu 75% örorkumat í fyrsta sinn árið 2021, eru þeir fleiri en að meðaltali næstu fjögur ár á undan og ef svo er, hverjar eru helstu skýringar á þeirri fjölgun? Hvert er meðaltal síðustu fimm ára?
Alls fengu 1.296 einstaklingar örorkumat í fyrsta sinn á árinu 2021, sem er lægra en meðaltal nýgengis örorku næstu fjögur ár á undan, sem var 1.417 að meðaltali. Meðaltal nýgengis örorku síðustu fimm ár er 1.392 einstaklingar, eins og sjá má í töflu 1.
Tafla 1. Meðaltal nýgengis örorku á árunum 2017–2021.
| Flokkur | Ár fyrsta úrskurðar | Nýgengi |
| 75% örorkumat | 2017 | 1.500 |
| 75% örorkumat | 2018 | 1.611 |
| 75% örorkumat | 2019 | 1.273 |
| 75% örorkumat | 2020 | 1.282 |
| 75% örorkumat | 2021 | 1.296 |
| Meðaltal sl. 5 ár | 1.392 |
2. Hvert er sambærilegt meðaltal nýgengis örorku annars staðar á Norðurlöndum síðustu fimm ár?
Í töflu 2 er að finna tölur um nýgengi örorku í Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð á árunum 2016–2020. Upplýsingar um nýgengi örorku í Finnlandi eru enn ekki tiltækar fyrir árið 2020 og ekki var unnt að afla upplýsinga um nýgengi örorku í Danmörku. Tölurnar sýna fjölda nýrra örorkulífeyrisþega á hverju ári á hverja 100.000 íbúa hvers lands.
Tafla 2. Nýgengi örorku í Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð á árunum 2016–2020.
| 2016 | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | |
| Finnland | 390 | 379 | 404 | 412 | |
| Ísland | 539 | 437 | 457 | 353 | 349 |
| Noregur | 558 | 600 | 690 | 686 | 539 |
| Svíþjóð | 172 | 121 | 108 | 115 | 122 |
Þegar bornar eru saman tölur um nýgengi örorku er mikilvægt að hafa hugfast að örorkumat er afar mismunandi í einstaka ríkjum, um er að ræða ólík kerfi sem ýmist miða t.d. við læknisfræðilegt mat á örorku eða mat á starfsgetu. Þá kunna reglur að hafa breyst á milli ára varðandi skilyrði örorkumats en allt getur þetta gert slíkan samanburð varhugaverðan.
3. Hversu margir hafa farið á endurhæfingarlífeyri á undanförnum fimm árum og hversu margir á hverju ári flytjast yfir á örorkulífeyri í kjölfarið?
Í töflu 3 má sjá fjölda einstaklinga sem hafa farið á endurhæfingarlífeyri á undanförnum fimm árum.
Tafla 3. Nýgengi endurhæfingarlífeyris á árunum 2017–2021.
| Flokkur | Ár fyrsta úrskurðar | Nýgengi |
| Endurhæfingarlífeyrir | 2017 | 1.304 |
| Endurhæfingarlífeyrir | 2018 | 1.394 |
| Endurhæfingarlífeyrir | 2019 | 1.687 |
| Endurhæfingarlífeyrir | 2020 | 1.964 |
| Endurhæfingarlífeyrir | 2021 | 1.816 |
| Samtals 2017–2021 | 6.554 |
Á árinu 2021 var hlutfall þeirra sem fóru af endurhæfingarlífeyri á örorkulífeyri 25%, árið 2020 var hlutfallið 32%, árið 2019 var það 35%, árið 2018 var það 41% og árið 2017 var það 42%. Í þessu sambandi er mikilvægt að hafa hugfast að ekki hafa allir lokið endurhæfingartímabili sínu og því skilar sér ekki að fullu sá fjöldi sem fer mögulega yfir á örorku beint af endurhæfingarlífeyri á þessu árabili. Þar af leiðandi er ekki hægt að álykta út frá tölum síðastliðinna þriggja ára hvað þetta varðar.
4. Hefur verið merkjanleg breyting á undanförnum árum á því hversu margir fara á örorkulífeyri? Ef svo er, af hverju?
Þeim hefur fækkað sem fá 75% örorkumat í fyrsta sinn á síðustu þremur árum miðað við síðustu þrjú ár þar á undan. Ástæða þessa er fyrst og fremst sú áherslubreyting sem felst í því að beina umsækjendum um örorkulífeyri í endurhæfingu áður en örorka er metin. Þannig hefur endurhæfingarlífeyrisþegum fjölgað verulega frá árinu 2018 á sama tíma og dregið hefur úr nýliðun öryrkja og vísbendingar eru um að endurhæfing hafi skilað sér í fækkun nýrra öryrkja.