Ferill 195. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 670 — 195. mál.
Svar
félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Jóhanni Páli Jóhannssyni um hækkun frítekjumarks.
1. Hvernig má ætla að ábatinn af fyrirhugaðri hækkun frítekjumarks atvinnutekna hjá ellilífeyrisþegum, úr 100 þús. kr. á mánuði upp í 200 þús. kr., dreifist eftir tekjutíundum og kyni?
Alls nutu 1.276 ellilífeyrisþegar góðs af hækkun frítekjumarks atvinnutekna þeirra, 822 karlar og 454 konur. Nákvæma dreifingu eftir tekjutíundum og kyni má sjá í töflu 1.
Tafla 1. Dreifing ábata af hækkun sérstaks frítekjumarks atvinnutekna ellilífeyrisþega úr 100 þús. kr. í 200 þús. kr. á mánuði.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2. Hvernig myndi ábatinn dreifast eftir tekjutíundum og kyni ef almennt frítekjumark ellilífeyrisþega yrði hækkað úr 25 þús. kr. í 50 þús. kr.? Hver yrði árlegur kostnaður ríkissjóðs af slíkri hækkun almenns frítekjumarks?
Í töflu 2 má sjá að ef almennt frítekjumark ellilífeyrisþega yrði hækkað úr 25 þús. kr. í 50 þús. kr. á mánuði myndu tæplega 35 þús. einstaklingar njóta góðs af slíkri hækkun, tæplega 16 þús. karlar og um 19 þús. konur. Gert er ráð fyrir að kostnaður ríkissjóðs gæti orðið tæpir 5 milljarðar kr. árlega við þá hækkun.
Tafla 2. Dreifing ábata af hækkun almenns frítekjumarks ellilífeyrisþega úr 25 þús. kr. í 50 þús. kr. á mánuði.
3.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hvernig myndi ábatinn dreifast eftir tekjutíundum og kyni ef almennt frítekjumark ellilíf eyrisþega yrði hækkað úr 25 þús. kr. í 100 þús. kr.? Hver yrði árlegur kostnaður ríkissjóðs af slíkri hækkun almenns frítekjumarks?
Í töflu 3 má sjá að ef almennt frítekjumark ellilífeyrisþega yrði hækkað úr 25 þús. kr. í 100 þús. kr. á mánuði myndu rúmlega 35 þús. einstaklingar njóta góðs af slíkri hækkun, um 16 þús. karlar og rúmlega 19 þús. konur. Gert er ráð fyrir að kostnaður ríkissjóðs gæti orðið um 13,7 milljarðar kr. árlega við þá hækkun.
Tafla 3. Dreifing ábata af hækkun almenns frítekjumarks ellilífeyrisþega úr 25 þús. kr. í 100 þús. kr. á mánuði.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.