Ferill 465. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 672  —  465. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um björgun og sjúkraflutninga Landhelgisgæslunnar á Suðurlandi.

Frá Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur.


     1.      Hver er staða verkefnis sem snýr að björgunar- og sjúkraþyrlum Landhelgisgæslunnar á Suðurlandi?
     2.      Hvernig er mönnun á þyrlum Gæslunnar háttað, þ.m.t. með tilliti til bakvakta?
     3.      Hver er meðalviðbragðstími þyrlnanna við útköll?


Skriflegt svar óskast.