Ferill 473. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 681  —  473. mál.




Fyrirspurn


til félags- og vinnumarkaðsráðherra um kærur til úrskurðarnefndar velferðarmála vegna ákvarðana umboðsmanns skuldara.

Frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur.


     1.      Hversu margar kærur bárust úrskurðarnefnd velferðarmála frá ársbyrjun 2016 til ársloka 2021 vegna ákvarðana umboðsmanns skuldara á grundvelli laga um greiðsluaðlögun, nr. 101/2010, sundurliðað eftir árum, hvaða ákvæði laganna hin kærða ákvörðun byggðist á og niðurstöðu máls?
     2.      Hversu mörgum umræddra kærumála var vísað frá á þeim grundvelli að umboðsmaður skuldara tók mál kæranda til skoðunar á ný á meðan nefndin var með málið til umfjöllunar, sundurliðað eftir árum?
     3.      Hver var meðalmálsmeðferðartími umræddra kærumála, þ.e. frá því að kæra barst og þar til úrskurður lá fyrir, sundurliðað eftir árum, að undanskildum málum sem var vísað frá á þeim grundvelli að kæra barst eftir að kærufrestur rann út?
     4.      Í hversu mörgum umræddra kærumála var málsmeðferðartími hjá nefndinni lengri en þrír mánuðir, sundurliðað eftir árum?
     5.      Hversu oft hefur umboðsmaður skuldara höfðað dómsmál til að fá úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála hnekkt, sundurliðað eftir árum?
     6.      Hversu oft hafa aðrir en umboðsmaður skuldara höfðað dómsmál til að fá úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála hnekkt, sundurliðað eftir árum og aðilum?


Skriflegt svar óskast.