Ferill 480. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 693 — 480. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um lyfjanotkun barna.
Frá Evu Sjöfn Helgadóttur.
Hversu hátt hlutfall barna undir 18 ára aldri hefur undanfarin tíu ár fengið ávísað lyfjum sem notuð eru til meðferðar við athyglisbresti og ofvirkni, róandi og kvíðastillandi lyfjum, svefnlyfjum, þunglyndislyfjum og geðrofslyfjum?
Svar óskast sundurliðað eftir árum, landshlutum, því hvort þau taka eitt lyf eða fleiri og eftirfarandi aldurshópum: 3–5 ára, 6–9 ára, 10–13 ára, 14–17 ára.
Skriflegt svar óskast.