Ferill 484. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 698 — 484. mál.
Fyrirspurn
til félags- og vinnumarkaðsráðherra um kærur til úrskurðarnefndar velferðarmála vegna ákvarðana um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.
Frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur.
1. Hversu margar kærur bárust úrskurðarnefnd velferðarmála frá ársbyrjun 2016 til ársloka 2021 vegna ákvarðana Tryggingastofnunar ríkisins í málum á grundvelli laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr. 22/2006, sundurliðað eftir árum?
2. Hversu mörgum umræddra kærumála var vísað frá á þeim grundvelli að Tryggingastofnun ríkisins tók mál kæranda til skoðunar á ný á meðan nefndin var með málið til umfjöllunar, sundurliðað eftir árum?
3. Hver var meðalmálsmeðferðartími umræddra kærumála, þ.e. frá því að kæra barst og þar til úrskurður lá fyrir, sundurliðað eftir árum, að undanskildum málum sem var vísað frá á þeim grundvelli að kæra barst eftir að kærufrestur rann út?
4. Í hversu mörgum umræddra kærumála var málsmeðferðartími hjá nefndinni lengri en þrír mánuðir, sundurliðað eftir árum?
5. Hversu oft hefur Tryggingastofnun ríkisins höfðað dómsmál til að fá úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála hnekkt, sundurliðað eftir árum?
Skriflegt svar óskast.