Ferill 486. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 700  —  486. mál.




Fyrirspurn


til félags- og vinnumarkaðsráðherra um kærur til úrskurðarnefndar velferðarmála vegna ákvarðana Sjúkratrygginga Íslands.

Frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur.


     1.      Hversu margar kærur bárust úrskurðarnefnd velferðarmála vegna ákvarðana Sjúkratrygginga Íslands frá ársbyrjun 2016 til ársloka 2021, sundurliðað eftir árum?
     2.      Hversu margar af þeim kærum voru vegna ákvarðana í málum á grundvelli:
                  a.      laga um sjúklingatryggingu, nr. 111/2000,
                  b.      laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008,
                  c.      laga um slysatryggingar almannatrygginga, nr. 45/2015,
                  d.      laga um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða, nr. 74/2020,
        sundurliðað eftir árum?
     3.      Hversu mörgum umræddra kærumála var vísað frá á þeim grundvelli að Sjúkratryggingar Íslands tóku mál kæranda til skoðunar á ný á meðan nefndin var með málið til umfjöllunar, sundurliðað eftir árum?
     4.      Hver var meðalmálsmeðferðartími umræddra kærumála, þ.e. frá því að kæra barst og þar til úrskurður lá fyrir, sundurliðað eftir árum, að undanskildum málum sem var vísað frá á þeim grundvelli að kæra barst eftir að kærufrestur rann út?
     5.      Í hversu mörgum umræddra kærumála var málsmeðferðartími hjá nefndinni lengri en þrír mánuðir, sundurliðað eftir árum?
     6.      Hversu oft hafa Sjúkratryggingar Íslands höfðað dómsmál til að fá úrskurði nefndarinnar hnekkt, sundurliðað eftir árum og á grundvelli hvaða laga hin kærða ákvörðun var tekin?


Skriflegt svar óskast.