Ferill 488. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 702  —  488. mál.




Fyrirspurn


til félags- og vinnumarkaðsráðherra um kærur til úrskurðarnefndar velferðarmála vegna húsnæðismála.

Frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur.


     1.      Hversu margar kærur bárust úrskurðarnefnd velferðarmála vegna ákvarðana Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eða, eftir atvikum, Íbúðalánasjóðs eða Húsnæðissjóðs frá ársbyrjun 2016 til ársloka 2021, sundurliðað eftir árum?
     2.      Hversu margar af þeim kærum voru vegna ákvarðana í málum á grundvelli:
                  a.      laga um húsnæðismál, nr. 44/1998,
                  b.      laga um almennar íbúðir, nr. 52/2016,
                  c.      laga um húsnæðisbætur, nr. 75/2016,
        sundurliðað eftir árum?
     3.      Hversu mörgum umræddra kærumála var vísað frá á þeim grundvelli að viðkomandi stofnun tók mál kæranda til skoðunar á ný á meðan nefndin var með málið til umfjöllunar, sundurliðað eftir árum?
     4.      Hver var meðalmálsmeðferðartími umræddra kærumála, þ.e. frá því að kæra barst og þar til úrskurður lá fyrir, sundurliðað eftir árum, að undanskildum málum sem var vísað frá á þeim grundvelli að kæra barst eftir að kærufrestur rann út?
     5.      Í hversu mörgum umræddra kærumála var málsmeðferðartími hjá nefndinni lengri en þrír mánuðir, sundurliðað eftir árum?
     6.      Hversu oft hefur Húsnæðis- og mannvirkjastofnun eða, eftir atvikum, forveri hennar Íbúðalánasjóður eða Húsnæðissjóður höfðað dómsmál til að fá úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála hnekkt, sundurliðað eftir árum og á grundvelli hvaða laga hin kærða ákvörðun var tekin?


Skriflegt svar óskast.