Ferill 489. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 703  —  489. mál.




Fyrirspurn


til félags- og vinnumarkaðsráðherra um kærur til úrskurðarnefndar velferðarmála vegna ákvarðana Vinnumálastofnunar.

Frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur.


     1.      Hversu margar kærur bárust úrskurðarnefnd velferðarmála vegna ákvarðana Vinnumálastofnunar frá ársbyrjun 2016 til ársloka 2021, sundurliðað eftir árum?
     2.      Hversu margar af þeim kærum voru vegna ákvarðana í málum á grundvelli:
                  a.      laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006,
                  b.      laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006,
                  c.      laga um tímabundnar greiðslur vegna launa einstaklinga sem sæta sóttkví samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda án þess að vera sýktir, nr. 24/2020,
                  d.      laga um greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs, nr. 155/2020,
        sundurliðað eftir árum?
     3.      Hversu mörgum umræddra kærumála var vísað frá á þeim grundvelli að Vinnumálastofnun tók mál kæranda til skoðunar á ný á meðan nefndin var með málið til umfjöllunar, sundurliðað eftir árum?
     4.      Hver var meðalmálsmeðferðartími umræddra kærumála, þ.e. frá því að kæra barst og þar til úrskurður lá fyrir, sundurliðað eftir árum, að undanskildum málum sem var vísað frá á þeim grundvelli að kæra barst eftir að kærufrestur rann út?
     5.      Í hversu mörgum umræddra kærumála var málsmeðferðartími hjá nefndinni lengri en þrír mánuðir, sundurliðað eftir árum?
     6.      Hversu oft hefur Vinnumálastofnun höfðað dómsmál til að fá úrskurði nefndarinnar hnekkt, sundurliðað eftir árum og á grundvelli hvaða laga hin kærða ákvörðun var tekin?


Skriflegt svar óskast.