Ferill 204. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 709  —  204. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Lenyu Rún Taha Karim um byrlanir.


    Tafir á svari skýrast af því að beðið var svara frá Landspítala sem vegna anna hefur ekki séð sér fært að svara en spítalinn tekur við flestum skjólstæðingum þar sem grunur leikur á byrlun. Af þeim sökum er byggt á svörum þeirra heilbrigðisstofnana, heilsugæslu og sjúkrahúsa sem svöruðu fyrirspurninni en eldri upplýsingar um byrlanir frá Landspítala eru nýttar í svarið.

     1.      Hvaða upplýsingar og tölfræði hefur ráðherra um byrlanir? Hversu mörg byrlunarmál eru skráð í málaskrá heilbrigðiskerfisins? Svar óskast greint eftir kyni fimm ár aftur í tímann.
    Erfitt er að nálgast nákvæmar tölur um mögulegar byrlanir úr sjúkraskrárkerfum heilbrigðisstofnana. Við komu einstaklinga á bráðamóttöku getur verið að í sumum tilfellum sé skráður grunur um byrlun, í öðrum tilfellum getur verið að skráningin lýsi meðvitundarleysi vegna eitrunar óháð því hver sé möguleg orsök.

     2.      Hvert er verklag heilbrigðisstofnana þegar uppi er grunur um byrlun eða fram kemur beiðni um rannsóknir sem tengjast byrlunarmálum? Hvernig er brugðist við beiðnum um blóðrannsókn?
    Tilvik þar sem grunur leikur á byrlun eru meðhöndluð eins og aðrar meðvitundarskerðingar, þ.e. með mælingu og vöktun lífsmarka, ítarlegri sögutöku og skoðun þar sem leitast er við að finna ástæður einkenna og framkvæmdar viðeigandi rannsóknir (þvagprufa með eiturefnaleit, blóðrannsókn sem tekur til blóðhags, salta, nýrnastarfsemi og lifrarstarfsemi auk paracetamóls og etanóls). Ef fyrrgreind meðhöndlun vekur upp grun um byrlun er bráðameðferð beitt með viðeigandi móteitrun og stuðningsmeðferð. Ef einstaklingur telur að sér hafi verið byrlað eða ef grunur vaknar hjá meðferðaraðila er viðkomandi boðið að haft sé samband við lögreglu. Í tengslum við rannsókn lögreglu er blóðpróf tekið vegna réttarlæknisfræðilegrar eiturefnarannsóknar. Landspítali vinnur að nýju verklagi í málefnum byrlana ásamt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

     3.      Hvaða heilbrigðisþjónustu fær fólk sem grunur leikur á um að hafi orðið fyrir byrlun?
    Allir sem leita til bráðamóttöku fá heilbrigðisþjónustu í samræmi við ástand sitt. Ef grunur er um byrlun er meðferðin sú að veita stuðning, hefja meðferð við lyfjaeitrun og tryggja eðlilega líkamsstarfsemi.

     4.      Hvernig er aðgengi almennra borgara, heilbrigðisstarfsmanna og annarra að lyfjum sem hægt er að nota til byrlunar?
    Heilbrigðisráðherra getur einungis svarað fyrir aðgengi að lyfjum eftir löglegum leiðum, þ.e. með ávísun heilbrigðisstarfsmanns, sbr. 48. gr. lyfjalaga, nr. 100/2020, en í ákvæðinu kemur fram að þeim einum sem hafi gilt starfsleyfi sem læknar eða tannlæknar innan Evrópska efnahagssvæðisins, sbr. lög um heilbrigðisstarfsmenn, eða gilt starfsleyfi sem dýralæknar, sbr. lög um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, sé heimilt að ávísa lyfjum. Þannig er fyrrgreindum aðilum heimilt að ávísa lyfjum, þar á meðal lyfjum sem hægt er að nota til byrlunar. Þess ber þó að geta að lyfið Flunitrazepam/Rohypnol sem oft er notað til byrlunar er ekki skráð lyf hér á landi og fæst því einungis sem undaþágulyf, sbr. 12. gr. lyfjalaga, að uppfylltum þeim skilyrðum sem fram koma í ákvæðinu.

     5.      Hvernig hyggst ráðherra bregðast við fjölda frásagna sem sýna hvernig öryggi, heilsu og kynfrelsi fólks hefur verið stefnt í hættu með byrlun?
    Málið er flókið samfélags-, réttarfars- og stundum læknisfræðilegt mál. Á dögunum hleypti dómsmálaráðherra af stokkunum herferð vitundarvakningar í skemmtanalífinu þar sem almenningur er hvattur til þess að vera vakandi gegn ofbeldi. Vitundarvakningin er unnin í samvinnu við Neyðarlínuna, ríkislögreglustjóra og fleiri aðila.
    Sem fyrr segir vinnur Landspítali nú að nýju verklagi í málefnum byrlana ásamt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Í kjölfarið verður metið hvort verklagið verði staðfært á aðrar bráðamóttökur og heilbrigðisstofnanir um allt land.