Ferill 426. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 726  —  426. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Líneik Önnu Sævarsdóttur um líkgeymslur.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Á hvaða heilbrigðisstofnunum og hjúkrunarheimilum eru staðsettar líkgeymslur og hver er rekstraraðili þess húsnæðis? Svar óskast sundurliðað.

    Innan heilbrigðisstofnana í heilbrigðisumdæmum landsins sem reknar eru af ríkinu eru kæliherbergi sem ætluð eru til líksgeymslu í skemmri tíma eða þar til þau eru flutt í líkhús. Slík kæliherbergi flokkast sem stoðrými viðkomandi stofnunar og falla undir rekstur hennar líkt og önnur stoðrými á hennar vegum. Heilbrigðisráðuneytið hefur ekki upplýsingar um að sambærileg rými sé að finna á hjúkrunarheimilum, enda eru hjúkrunarheimili yfirleitt í nágrenni við heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni eða líkhús í þéttbýlum.
    Í verklagsreglum sóttvarnarlæknis frá árinu 2018, um meðferð og flutning á líkum, má finna leiðbeiningar m.a. um hreinlæti í líkgeymslum. Í reglunum er skilgreint hvað þurfi að vera til staðar í slíku rými.