Ferill 510. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 728  —  510. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um flutning Landhelgisgæslu Íslands til Reykjanesbæjar.


Flm.: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Guðbrandur Einarsson.


    Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra að hefja undirbúning að flutningi Landhelgisgæslu Íslands til Reykjanesbæjar.

Greinargerð.

    Tillaga þessi var áður flutt á 139., 140., 143., 144., 145. og 146. löggjafarþingi og er nú endurflutt með breytingum.
    Umræða hefur vaknað um að heillavænlegt gæti verið að flytja Landhelgisgæslu Íslands í hentugt og rúmgott húsnæði á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli sem rekið yrði af Landhelgisgæslunni, sbr. samning frá 30. júlí 2014 milli utanríkisráðherra og innanríkisráðherra um að ríkislögreglustjóri og Landhelgisgæsla Íslands annist tiltekin verkefni samkvæmt varnarmálalögum, nr. 34/2008, lögum um Landhelgisgæslu Íslands, nr. 52/2006, og samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands. Að mati flutningsmanna fylgja fjölmargir kostir því að flytja alla starfsemi Landhelgisgæslunnar á Suðurnes, nánar tiltekið á öryggissvæði íslenska ríkisins á Ásbrú, en Landhelgisgæslan rekur nú þegar umfangsmikla starfsemi á svæðinu og þar eru þúsundir fermetra af vannýttu húsnæði. Mikil hagræðing fylgir því að hafa alla starfsemina á einum stað. Þjónusta og öryggi munu einnig aukast þar sem viðbragðstími Landhelgisgæslunnar styttist þegar öll starfsemi hennar færist á einn stað, þótt ekki verði útilokað að starfsstöðvar verði í öðrum landshlutum. Einnig mun flugfloti gæslunnar komast í gott framtíðarhúsnæði sem uppfyllir öryggisstaðla.
    Fyrir liggur að kostnaður fylgir flutningi sem þessum, m.a. vegna aukins kostnaðar við flutning starfsmanna frá Reykjavík til Suðurnesja, en sá kostnaður er bundinn kjarasamningum. Einnig er nefndur verulegur kostnaður við að breyta bakvaktafyrirkomulagi þyrlusveitar í viðverufyrirkomulag. Þá þyrfti að fjölga þyrluflugmönnum um 50%. Þess ber þó að geta að með breyttu vaktafyrirkomulagi styttist viðbragðstími áhafna mikið og þar með eykst öryggi. Í úttekt á verkefnum og fjárreiðum Landhelgisgæslunnar frá Ríkisendurskoðun árið 2022 kemur fram að í skýrslu innanríkisráðuneytis um getu Landhelgisgæslunnar til að sinna lögbundnu hlutverki sínu og tryggja viðunandi þjónustu- og öryggisstig (2015) hafi komið fram að það tæki að jafnaði 25–30 mínútur fyrir þyrlurnar að fara í loftið frá útkalli. Til að bæta úr þessu yrði m.a. að afnema bakvaktafyrirkomulag og koma á bundinni staðarvakt.
    Flutningurinn eykur öryggi og skilvirkni Landhelgisgæslunnar en honum þarf að fylgja fjármagn svo að hann hafi ekki áhrif á árangur Landhelgisgæslunnar. Því ber að auka fjármagn til Landhelgisgæslunnar m.a. vegna þessara flutninga, eins og fram kom í umsögn Landhelgisgæslunnar við fyrri framlagningu málsins.
    Einnig er vert að nefna að Landhelgisgæslan rekur nú þegar mörg mannvirki á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Þau eru lítið eða ekkert nýtt. Lengi vel höfðu æðstu stjórnendur Landhelgisgæslunnar unnið í vinnuaðstöðu á Suðurnesjum án vandræða. Þar var varnartengdum rekstrarverkefnum sinnt sem krefjast mikillar sérþekkingar. Nýlega hefur vinnuaðstaða margra stjórnenda og sérfræðinga verið flutt til Reykjavíkur, en ekki er vitað til hvers ráðist var í þær aðgerðir.
    Á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli er afar heppileg aðstaða fyrir alla starfsemi Landhelgisgæslunnar til framtíðar. Þar er húsnæði, flugbrautir, góð hafnaraðstaða og stoðkerfi sem fullnægir þörfum Landhelgisgæslunnar að öllu leyti. Þá má benda á að bandarísk stjórnvöld áforma tveggja milljarða kr. endurbætur á flugskýlinu á Keflavíkurflugvelli sem Landhelgisgæslan rekur og mun sú framkvæmd nýtast gæslunni. Flugskýlið á Reykjavíkurflugvelli mun taka umfangsmiklum breytingum á næstu árum, sem er eftirtektarvert þar sem það á ekki að vera framtíðarstaðsetning.
    Umfangsmikil uppbygging hafnar- og upptökumannvirkja með stuðningi ríkisins stendur yfir í Njarðvíkurhöfn þar sem byggður verður skipaþjónustuklasi. Höfnin verður gífurlega öflug og mun nýtast Landhelgisgæslunni töluvert í starfsemi sinni. Það gefur augaleið að nýta hana til þarfa gæslunnar.
    Nú er starfsemi Landhelgisgæslunnar dreifð í leiguhúsnæði á mörgum stöðum, þ.m.t. höfuðstöðvarnar í Skógarhlíð, og stendur gæslan straum af rekstrarkostnaði flugskýlisins á Reykjavíkurflugvelli, sem er í eigu íslenska ríkisins og rekið af Isavia. Stækkunarmöguleikar á Reykjavíkurflugvelli, þar sem flugsveitin er nú, eru ekki fyrir hendi og húsnæðið mjög óhentugt í alla staði. Í byggingum á öryggissvæðinu er hins vegar aðstaða fyrir alla starfsemi gæslunnar. Þar er landsvæði sem hægt er að laga að þörfum stofnunarinnar og velvilji er hjá öllum sveitarfélögum á Suðurnesjum.
    Mannvirkin sem um ræðir á öryggissvæðinu eru nú þegar í rekstri Landhelgisgæslunnar og með því að nýta þau enn betur undir starfsemi gæslunnar næðist mikil fjárhagsleg hagræðing fyrir ríkið til langs tíma. Hér má nefna stóra flugskýlið (12.200 m2) sem endurnýjað hefur verið eins og áður kom fram, og þjónustubyggingar sem má nýta fyrir flugvélar, þyrlur og viðhald. Óverulegar breytingar þarf að gera á þessum byggingum svo að þær henti starfsemi gæslunnar. Í þessu samhengi er rétt að benda á ábyrgð ríkisins gagnvart mannvirkjasjóði Atlantshafsbandalagsins varðandi viðhald og rekstur mannvirkjanna en kostnaður af því fellur á gistiríkið, þ.e. íslenska ríkið í þessu tilviki. Með flutningi til Suðurnesja fengi Landhelgisgæslan gott framtíðarhúsnæði og stórbætta aðstöðu og því til viðbótar mun betri samnýtingu á starfsmönnum.
    Á svæðinu er einkar góð hafnaraðstaða í Njarðvíkurhöfn, Keflavíkurhöfn og Helguvíkurhöfn. Nú þegar ber Landhelgisgæslan ábyrgð á rekstri hluta Helguvíkurhafnar, þ.e. þess hluta sem er á eignaskrá mannvirkjasjóðs Atlantshafsbandalagsins. Úttekt á nauðsynlegum breytingum á hafnaraðstöðu liggur fyrir (2009). Njarðvíkurhöfn getur strax tekið við skipaflota Landhelgisgæslunnar og Helguvíkurhöfn kemur einnig til greina enda hafa varðskipin reglulega viðkomu þar. Staðsetning hafna út frá öryggissjónarmiðum mundi batna frá því sem nú er þar sem styttra yrði fyrir varðskipin að komast út á aðalstarfssvæði Landhelgisgæslunnar, hafsvæðið kringum Ísland.
    Með samþættingu verkefna munu möguleikar Landhelgisgæslunnar til að sinna leit og björgun í samstarfi við nágrannaþjóðir margfaldast en Landhelgisgæslan nýtir nú þegar öryggissvæðið í þeim tilgangi. Það hefur háð Landhelgisgæslunni að hafa ekki haft viðeigandi tengimöguleika, sem eru til staðar suður frá á sviði leitar, björgunar, öryggis- og varnarmála, löggæslu, umhverfisverndar og auðlindagæslu, og sömuleiðis við stofnanir nágrannaríkja, sem flestar eru herir, eða stofnanir á vegum varnarmálaráðuneyta samstarfsþjóðanna.
    Landhelgisgæslan rekur nú þegar öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli og fer með framkvæmd öryggis- og varnartengdra verkefna, sbr. varnarmálalög, nr. 34/2008, auk þess sem sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar hefur aðstöðu á svæðinu og sinnir hlutverki samkvæmt lögum um Landhelgisgæslu Íslands, nr. 52/2006. Þess má einnig geta að sérsveit ríkislögreglustjóra hefur aðstöðu á öryggissvæðinu og hópar á vegum lögreglu æfa þar reglulega.
    Með flutningi Landhelgisgæslunnar á Suðurnes mundi ríkisvaldið gera Landhelgisgæsluna að enn öflugri stofnun til hagsbóta fyrir landsmenn alla, aðstaðan fyrir starfsemina yrði mun betri og tryggð til framtíðar og síðast en ekki síst mundi flutningurinn styðja við atvinnuuppbyggingu á svæðinu öllu.