Ferill 413. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 729  —  413. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Evu Dögg Davíðsdóttur um þjónustu við trans börn og ungmenni.



     1.      Hver er meðalbiðtími trans barna og ungmenna eftir þjónustu transteymis barna- og unglingageðdeildar Landspítala, BUGL?
    Samkvæmt upplýsingum um biðtíma eftir þjónustu sem birtist á vef umboðsmanns barna í febrúar sl. var biðtími eftir þjónustu í transteymi BUGL í desember 2021 eftirfarandi: fjöldi barna á bið 39, meðalbiðtími 11,1 mánuðir og 27 börn hafa beðið lengur en þrjá mánuði.
    Samkvæmt upplýsingum frá barna- og unglingageðdeild Landspítala hefur biðtími frá því í desember 2021 á göngudeild BUGL styst um rúma fjóra mánuði, börnum á bið hefur fækkað um tvö og ekki hefur fjölgað í þeim hópi sem beðið hefur í þrjá mánuði eða lengur. Um miðjan mars 2022 er fjöldi barna á bið 37, meðalbiðtími er 7 mánuðir og 27 börn hafa beðið lengur en 3 mánuði.

     2.      Hver er meðalbiðtími trans ungmenna sem ná 18 ára aldri á meðan þau bíða eftir þjónustu frá transteymi geðdeildar?
    Í mars 2022 er meðalbiðtími eftir þjónustu transteymis fullorðinna á Landspítala um 4–6 mánuðir. Aukin eftirspurn hefur verið undanfarið eftir þjónustu transteymis fullorðinna og biðtími því verið að lengjast.

     3.      Hvernig er tryggð samfella í þjónustu milli transteymis BUGL og transteymis geðdeildar?
    Þegar fyrirhugað er að trans ungmenni flytjist yfir í þjónustu transteymis fullorðinna gera fagaðilar transteymis BUGL beiðni 2–4 mánuðum fyrir 18 ára aldur einstaklings til transteymis geðþjónustunnar. Þegar hann hefur svo náð 18 ára aldri á yfirfærsla ábyrgðar sér stað á milli BUGL og transteymis geðdeildar.

     4.      Telur ráðherra koma til greina að transteymi geðdeildar og BUGL geri þjónustusamninga við utanaðkomandi aðila til þess að flýta fyrir meðferð og tryggja fullnægjandi sérþekkingu innan málaflokksins?
    Samkvæmt lögum um kynrænt sjálfræði, nr. 80/2019, skal starfrækt teymi um kynvitund á barna- og unglingageðdeild Landspítala. Heimilar 13. gr. laganna teyminu að kalla aðra sérfræðinga til ráðgjafar og samstarfs. Í þessu samhengi er tekið fram að heilbrigðisstofnunum er heimilt að útvista þjónustu með beinum samningum við þjónustuveitendur, eins og dæmi eru um í annarri þjónustu Landspítala.