Ferill 407. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 744  —  407. mál.




Svar


matvælaráðherra við fyrirspurn frá Oddnýju G. Harðardóttur um orkugjafa nýs hafrannsóknaskips.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver er niðurstaða könnunar á því hvaða aðrir orkugjafar en jarðefnaeldsneyti koma til greina fyrir nýtt hafrannsóknaskip, sbr. aðgerð B.5 í aðgerðaáætlun Íslands í loftslagsmálum?

    Það er loftslagsvænna og hagkvæmara til lengri tíma að nota innlenda endurnýjanlega orku en innflutt jarðefnaeldsneyti. Tækniþróun í skipum hefur ekki verið jafn ör og í bifreiðum en brýnt er að nýta allar leiðir til að ýta undir nýjar loftslagsvænar lausnir. Orkuskipti í skipum á vegum ríkisins er ný aðgerð í aðgerðaáætlun Íslands í loftslagsmálum sem felur í sér að draga markvisst úr notkun jarðefnaeldsneytis sem orkugjafa í skipum á vegum ríkisins.
    Hafrannsóknaskip eru með sérhæfðustu skipum sem smíðuð eru og á þeim þarf að vera hægt að stunda flóknar mælingar með ýmsum tæknibúnaði en einnig að draga og meðhöndla tiltölulega stór togveiðarfæri og þjónusta þau. Þótt íslensk hafrannsóknaskip þurfi að smíða með fjölþætta notkun í huga þá verður fyrst og fremst að taka mið af stóru farsviði skipanna, en skipin sigla 20.000 til 30.000 sjómílur á ári og allt að rúmum mánuði í senn.
    Við hönnun á nýju hafrannsóknaskipi hefur verið horft til ýmissa leiða til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og ýmsir kostir skoðaðir. Gera má ráð fyrir að nýtt hafrannsóknaskip noti um 4.500.000 kWst. á ári og til þess þurfi að brenna 900.000 til 1.000.000 lítra af olíu. Orkunotkuninni má skipta í tvo meginflokka, þ.e. orku til að knýja skipið áfram og orku til notkunar innan skips. Um 80% af orkunotkun skipsins fer í að knýja skipið áfram og um 20% til notkunar við spilbúnað, kyndingu, rannsóknastofur, til lýsingar, upphitunar, matseldar og loftræstingar. Farin var sú leið að hanna langt og mjótt skip en talið er að hönnun þess spari um 100 þúsund lítra af olíu á ári miðað við þá hönnun sem almennt tíðkast fyrir sambærileg skip. Skipið verður drifið áfram af rafmótorum en til að knýja þá þarf að framleiða rafmagn með notkun á jarðefnaeldsneyti, a.m.k. fyrst um sinn, þar til hægt verður að gera breytingar eftir því sem tækninni fleygir fram.
    Smíðanefnd skipsins lét taka saman sérstaka skýrslu um orkusparnað og aðra orkugjafa en olíu í febrúar 2020. Þeir orkugjafar sem voru skoðaðir voru rafgeymar, metanól, lífdísilolía/repja, náttúrugas, vetni, vindorka og sólarsellur.
    Niðurstöður skýrslunnar voru í meginatriðum þessar:
    Rafgeymar koma ekki að notum sem beinn orkugjafi, þar sem jafnvel stærstu gerðir gætu einungis skilað minna en 1% af orkuþörf skipsins. Minni rafgeyma mætti hins vegar nýta til orkujöfnunar um borð í skipinu, sem leiddi til örlítið minni olíueyðslu.
    Metanól er að mörgu leyti vænlegur orkugjafi, aðallega vegna þess að hægt er að geyma efnið í venjulegum eldsneytisgeymum í skipi. Orkuinnihald metanóls er minna en helmingur af orkuinnihaldi á rúmmálseiningu, sem leiðir af sér að eldsneytisgeymar verða að vera helmingi stærri en venjulegir olíugeymar, eða þá að farsvið skipsins væri minnkað um helming. Meginvandamálið varðandi metanólið er hins vegar að enginn af helstu vélaframleiðendum er tilbúinn með vélar af þeirri gerð sem henta í rannsóknaskip og geta brennt metanóli. Þó gæti það verið valkostur við að knýja áfram ljósavél í skipinu.
    Lífdísill og rafeldsneyti er hægt að geyma í venjulegum eldsneytisgeymum og brenna á lítið breyttum venjulegum dísilvélum. Verði þessir orkugjafar fáanlegir kann að vera fýsilegur kostur að nota slíka orkugjafa til að framleiða rafmagn á rafmótora sem knýja skipið. Það yrði þó að tryggja að ábyrgð framleiðenda aðalvéla skipsins nái til slíks eldsneytis hvort sem það yrði nýtt sem tiltekið hlutfall íblöndunar eða að öllu leyti.
    Náttúrugas er talsvert notað sem eldsneyti á skip og þá sérstaklega á skip sem hafa stutta útiveru, en gasið er geymt undir þrýstingi í þar til gerðum kútum sem þarfnast mikils pláss ef geyma á gasið í miklu mæli. Að auki er náttúrugas ekki aðgengilegt á Íslandi og spurning hvert kolefnissporið væri þegar búið væri að flytja það til Íslands.
    Vetni er svipuðum annmörkum háð og náttúrugas, að geyma verður það undir miklum þrýstingi, því er ekki hægt að geyma það um borð í skipi í miklu magni, en hægt að nýta það á breyttum dísilvélum og efnarafölum.
    Aðrir orkugjafar eins og vindorka og sólarsellur voru einnig skoðaðir. Vindorku mætti eflaust nota til að spara orku við að drífa skipið áfram, en víða um heim fara fram ýmsar tilraunir með seglabúnað af ýmsum gerðum og vindhreyfla af ýmsum gerðum. Sólarsellur gefa mjög litla orku á okkar norðlægu slóðum.
    Þróun í nýtingu annarra orkugjafa en hefðbundinnar olíu hefur verið mjög hröð síðustu misseri, þannig að síðan skýrslan fyrir smíðanefndina var unnin í lok árs 2019 og byrjun árs 2020 hefur ýmislegt gerst varðandi rafeldsneyti ýmiss konar, aðallega vetni, metanól og síðan ammoníak. Hafrannsóknastofnun og tæknimenn á vegum Hafrannsóknastofnunar hafa átt marga fundi með helstu vélaframleiðendum og ýmsum sérfræðingum í orkumálum, þar sem reynt hefur verið að rýna í hver þróunin er og hvað sé líklegast til að verða ofan á sem framtíðareldsneyti fyrir skip.
    Niðurstaðan úr þessum könnunum er sú að rafeldsneyti í einhverju formi, helst í formi metanóls eða ammoníaks, sé það sem helst verði ofan á og flestum nýjum dísilvélum hægt að breyta til að brenna þessum orkugjöfum.
    Það sem helst hefur verið til skoðunar er sá möguleiki að búa hluta aflkerfis skipsins eða þann hluta sem tilheyrir svokallaðri hafnarljósavél þannig að hægt væri að nota rafeldsneyti eins og metanól á þessa vél, eða skipið verði búið sjálfstæðum efnarafal sem nýtti vetni. Þannig mætti strax fá reynslu á notkun annars konar eldsneytis með því að samnýta hafnarljósavél og rafgeyma þegar lítið álag er á aflkerfi skipsins. Unnið er að því að kanna þennan kost nánar.
    Þá má benda á að lítil framleiðsla er innan lands á orkugjöfunum metanóli, lífdísil og rafeldsneyti. En tækifæri eru til staðar til að auka framleiðslu og því möguleiki að nýta þessa orkugjafa í auknum mæli í framtíðinni við rekstur skipsins og annarra skipa í eigu ríkisins enda hafi þá tekist að þróa vélar og setja nauðsynlega staðla til að tryggja örugga notkun slíkra orkugjafa.
    Gert er ráð fyrir að skipið verði fyrst um sinn knúið áfram af hefðbundinni olíu en ákveðið hefur verið að búa skipið einnig rafgeymapakka til orkujöfnunar. Skipið verður því tvíorkuskip með rafmótorum og vonir eru bundnar við að tækninni fleygi fram sem geri mögulegt í náinni framtíð að gera breytingar á aðalorkugjafa skipsins. Hönnun og smíði skipsins verður með þeim hætti að gert er ráð fyrir að aðlögun og breytingar yfir í umhverfisvænni orkugjafakosti verði möguleg.