Ferill 340. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 745 — 340. mál.
Svar
félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur um samskipti við hagsmunaverði og skráningu þeirra.
1. Hafa öll samskipti ráðherra og ráðuneytisins við hagsmunaverði frá 1. janúar 2021 verið skráð eins og kveðið er á um í 2. mgr. 4. gr. laga um varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands, nr. 64/2020?
Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga um varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands, nr. 64/2020, er stjórnvöldum skylt að skrá upplýsingar um samskipti þeirra og hagsmunavarða í samræmi við ákvæði upplýsingalaga, laga um opinber skjalasöfn og laga um Stjórnarráð Íslands. Upplýsingar um aðkomu hagsmunavarða og annarra einkaaðila að samningu stjórnarfrumvarpa skal tilgreina í greinargerð með þeim. Í 3. mgr. 1. gr. laganna er hugtakið hagsmunavörður skilgreint. Með hugtakinu er átt við einstaklinga sem tala máli einkaaðila gagnvart stjórnvöldum og leitast við að hafa áhrif á störf þeirra í atvinnuskyni. Með því að afmarka hugtakið við einstaklinga eru ýmis félagasamtök og fyrirtæki, sem í daglegu tali eru nefnd hagsmunasamtök, strangt til tekið undanskilin reglum 4. gr. en einstakir starfsmenn þeirra geta hins vegar borið skyldur samkvæmt ákvæðinu. Í skýringum við 4. gr. í greinargerð sem fylgdi frumvarpi því sem varð að lögum nr. 64/2020 segir: „Markmið ákvæðisins er fyrst og fremst að í samskiptum hagsmunavarða annars vegar og handhafa framkvæmdarvalds hins vegar liggi fyrir að þeir fyrrnefndu séu að gæta ákveðinna einkahagsmuna, fyrir hönd annarra, gagnvart þeim síðarnefndu. Ákvæðið á því ekki við þegar einstaklingar gæta opinberra hagsmuna í samskiptum við aðra opinbera aðila, svo sem í samskiptum forstöðumanna ríkisstofnana við fagráðuneyti. Þá á ákvæðið heldur ekki við þegar einstaklingar gæta eigin hagsmuna gagnvart hinu opinbera. Til að mynda þarf fyrirsvarsmaður lögaðila, t.d. framkvæmdastjóri fyrirtækis, ekki að senda sérstaka tilkynningu um að hann gæti hagsmuna þess í samskiptum sínum við stjórnvöld. Annað gildir ef fyrirtækið ræður til sín á eigin kostnað einstakling sem hefur það hlutverk að hafa áhrif á störf stjórnvalda í þágu fyrirtækisins, hvort sem um er að ræða störf samkvæmt verksamningi eða ráðningarsamningi. Samkvæmt framangreindu er ljóst að tilkynningarskyldan mun einkum ná til svonefndra almannatengla, upplýsingafulltrúa einkaaðila og lögmanna, sbr. þó 4. mgr., og til einstakra starfsmanna lögaðila og fulltrúa hagsmunasamtaka sem hafa slíka og sambærilega starfsemi með höndum.“
Í 2. mgr. 27. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, kemur fram að stjórnvöld skuli gæta þess að haldið sé til haga mikilvægum upplýsingum, m.a. um samskipti við almenning og önnur stjórnvöld, svo sem með skráningu fundargerða eða minnisblaða. Í lögum um opinber skjalasöfn, nr. 77/2014, kemur enn fremur fram að afhendingarskyldum aðilum samkvæmt lögunum er skylt að skrá mál sem koma til meðferðar hjá þeim á kerfisbundinn hátt og varðveita málsgögn þannig að þau séu aðgengileg í samræmi við reglur sem Þjóðskjalasafni Íslands er falið að setja. Hvað Stjórnarráð Íslands varðar leiðir af 11. gr. laga nr. 115/2011 að ráðuneytum í Stjórnarráði Íslands er skylt að færa skrá um formleg samskipti og fundi, sem og óformleg samskipti ef þau teljast mikilvæg, milli ráðuneytanna sem og við aðila utan þess. Á grundvelli ákvæðisins hafa verið settar reglur um skráningu samskipta í Stjórnarráði Íslands, sbr. reglur nr. 320/2016, en þar segir að með óformlegum samskiptum sé átt við munnleg samskipti, þar á meðal símtöl og fundi, þar sem lýst er afstöðu eða veittar upplýsingar sem teljast hafa þýðingu fyrir mál sem er til meðferðar í ráðuneyti eða teljast mikilvægar upplýsingar vegna málefna sem heyra undir ráðuneytið, enda komi afstaðan ekki fram í öðrum skráðum gögnum. Skrá skal hvenær samskiptin fóru fram, milli hverra og efni upplýsinga sem um ræðir.
Ekki liggja fyrir upplýsingar um annað en að samskipti félags- og vinnumarkaðsráðherra við hagsmunaverði hafi verið skráð í málaskrá ráðuneytisins í samræmi við ákvæði framangreindra laga. Þá má finna upplýsingar um fundi félags- og vinnumarkaðsráðherra með hagsmunavörðum í yfirliti yfir fundi ráðherra í opnum dagbókum.
2. Hefur ráðuneytið ávallt gætt þess að kanna hvort hagsmunaverðir, sem ráðuneytið eða ráðherra á hverjum tíma hafa átt samskipti við frá 1. janúar 2021, hafi verið tilkynntir og skráðir skv. 3. mgr. 4. gr. laga nr. 64/2020 áður en þeir leituðust við að hafa áhrif á störf stjórnvalda?
Í 3. mgr. 4. gr. laga nr. 64/2020 er mælt fyrir um tilkynningarskyldu hagsmunavarða. Samkvæmt ákvæðinu er hagsmunaverði skylt að tilkynna um sig og hlutverk sitt áður en hann leitast við að hafa áhrif á störf stjórnvalda fyrir hönd einkaaðila. Áður en hagsmunavörður hefur störf fyrir einkaaðila, þ.e. áður en hann setur sig í samband við stjórnvöld og reynir að hafa áhrif á störf þeirra, ber honum því að tilkynna um sig og hlutverk sitt. Af 7. gr. laganna leiðir að tilkynningu er rétt að beina til forsætisráðuneytis sem heldur skrá yfir þær en berist tilkynning til annars opinbers aðila, t.d. þess sem ætlunin er að hafa áhrif á, er rétt að framsenda hana til forsætisráðuneytis. Tilkynningin getur bæði lotið að því að hagsmunavörður gæti hagsmuna tiltekins einkaaðila í tilteknu afmörkuðu og fyrirliggjandi máli og að því að stöðu sinnar vegna gæti hagsmunavörður hagsmuna einkaaðilans í samskiptum sínum við stjórnvöld.
Þá er lögaðilum og félagasamtökum, samkvæmt sömu málsgrein, heimilt að senda tilkynningu um einstaklinga sem sinna hagsmunagæslu í umboði þeirra. Í tilkynningu skal greina:
a. nafn og kennitölu hagsmunavarðar,
b. vinnuveitanda og starfsstöð,
c. hlutverk, þ.e. fyrir hönd hvaða aðila hagsmunavörður kemur fram og helstu hagsmuni þeirra; taka skal fram hvort hlutverkið er viðvarandi eða tilfallandi og hvenær gert er ráð fyrir að því ljúki.
Samkvæmt 4. mgr. 4. gr. skal hagsmunavörður tilkynna um þegar hann sinnir ekki lengur hagsmunagæslu. Þá er kveðið á um það í 5. mgr. greinarinnar að þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. sé hagsmunavörðum ekki skylt að tilkynna um sig og hlutverk sitt vegna meðferðar mála á grundvelli stjórnsýslulaga. Samkvæmt framangreindu er það í höndum hagsmunavarða að tilkynna um hlutverk sitt áður en þeir leitast við að hafa áhrif á störf stjórnvalda.
Í lögum nr. 64/2020 er ekki gert ráð fyrir því að það hafi afleiðingar fyrir þá sem sinna hagsmunagæslu tilkynni þeir sig ekki sem hagsmunaverði. Markmið ákvæða laganna um tilkynningarskyldu hagsmunavarða og skráningu samskipta við þá er fyrst og fremst að auka gagnsæi um samskiptin. Komi einstaklingur fram sem hagsmunavörður gagnvart stjórnvöldum án þess að hafa tilkynnt um hlutverk sitt væri hins vegar rétt af stjórnvaldi að benda á tilkynningarskyldu þar um, sbr. 2. mgr. 14. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Ekki hefur hingað til verið kannað kerfisbundið hvort þeir sem ráðherra eða ráðuneyti eiga í samskiptum við hafi verið tilkynntir eða skráðir samkvæmt lögum nr. 64/2020.
3. Hefur ráðherra eða ráðuneytið í einhverjum tilfellum frá 1. janúar 2021 átt samskipti við aðila sem sinna hagsmunagæslu en höfðu ekki verið tilkynntir og skráðir sem hagsmunaverðir skv. 3. mgr. 4. gr. laga nr. 64/2020 þegar samskiptin fóru fram? Ef svo er, í hvaða tilfellum og hvers vegna?
Á degi hverjum á félags- og vinnumarkaðsráðherra og starfsfólk félags- og vinnumarkaðsráðuneytis samskipti við aðila sem sinna hagsmunagæslu af einhverju tagi. Opin dagbók ráðherra ber t.d. vott um það. Við vinnslu svars þessa var tekið saman hvaða samskipti hafa átt sér stað við hagsmunaverði sem hafa tilkynnt um það hlutverk sitt. Ekki liggja fyrir samanteknar upplýsingar um samskipti við aðila sem sinna hagsmunagæslu en höfðu ekki verið tilkynntir og skráðir sem hagsmunaverðir skv. 3. mgr. 4. gr. laga nr. 64/2020 þegar samskiptin fóru fram, jafnvel þótt þeim kunni að hafa verið það skylt. Sömu reglur gilda eftir sem áður um skráningu samskipta við slíka aðila óháð því hvort þeir hafi tilkynnt um sig og hlutverk sitt. Þannig var það ekki tilgangur laga nr. 64/2020 að leggja aukna skráningarskyldu á stjórnvöld um samskipti við skráða hagsmunaaðila miðað við það sem almennt gildir um skráningu samskipta.
4. Hvaða hagsmunaverði í skilningi laga nr. 64/2020 hefur ráðherra eða ráðuneytið átt samskipti við frá gildistöku laganna, hvenær, af hálfu hvaða aðila og um hvaða málefni?
Meðfylgjandi eru öll samskipti sem ráðherra eða ráðuneytið hafa átt við skráða hagsmunaaðila frá 1. janúar 2021 til loka febrúar árið 2022.
| Dagsetning | Hagsmunasamtök | Hagsmunavörður | Efni |
| 8.1.2021 | Öryrkjabandalag Íslands | Þuríður Harpa Sigurðardóttir | Málefni er varða endurhæfingu |
| 13.1.2021 | Samtök atvinnulífsins | Jón Rúnar Pálsson | Nefnd um heildarendurskoðun laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar – skipunarbréf |
| 13.1.2021 | Samtök atvinnulífsins | Maj-Britt Hjördís Briem | Eftirlitsnefnd með framkvæmd laga um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan EES – skipunarbréf |
| 13.1.2021 | Samtök atvinnulífsins | Ragnar Árnason | Eftirlitsnefnd með framkvæmd laga um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan EES – skipunarbréf |
| 20.1.2021 | Samtök fjármálafyrirtækja | Katrín Júlíusdóttir | Starfshópur um tillögur að aðgerðum fyrir heimilin vegna COVID-19 – skipunarbréf |
| 20.1.2021 | Neytendasamtökin | Breki Karlsson | Starfshópur um tillögur að aðgerðum fyrir heimilin vegna COVID-19 – skipunarbréf |
| 20.1.2021 | Hagsmunasamtök heimilanna | Guðmundur Ásgeirsson | Starfshópur um tillögur að aðgerðum fyrir heimilin vegna COVID-19 – skipunarbréf |
| 20.1.2021 | Samtök fjármálafyrirtækja | Yngvi Örn Kristinsson | Starfshópur um tillögur að aðgerðum fyrir heimilin vegna COVID-19 – skipunarbréf |
| 20.1.2021 | Neytendasamtökin | Brynhildur Pétursdóttir | Starfshópur um tillögur að aðgerðum fyrir heimilin vegna COVID-19 – skipunarbréf |
| 21.1.2021 | Hagsmunasamtök heimilanna | Ásthildur Lóa Þórsdóttir | Ráðgjöf, stuðningur og hagsmunagæsla Hagsmunasamtaka heimilanna |
| 21.1.2021 | Öryrkjabandalag Íslands | Rúnar Björn Herrera Þorkelsson | Starfshópur um heildarendurskoðun laga nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir – skipunarbréf |
| 21.1.2021 | Þroskahjálp | Bryndís Snæbjörnsdóttir | Starfshópur um heildarendurskoðun laga nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir – skipunarbréf |
| 21.1.2021 | Öryrkjabandalag Íslands | Alma Ýr Ingólfsdóttir | Starfshópur um heildarendurskoðun laga nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir – skipunarbréf |
| 21.1.2021 | Þroskahjálp | Friðrik Sigurðsson | Starfshópur um heildarendurskoðun laga nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir – skipunarbréf |
| 25.1.2021 | Þroskahjálp | Árni Múli Jónasson | Kynning á niðurstöðum úrskurða |
| 26.1.2021 | Þroskahjálp | Bryndís Snæbjörnsdóttir | Málefni er varða úttektir Gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu og barnaverndar |
| 26.1.2021 | Bændasamtökin | Oddný Steina Valsdóttir | Stjórn Tryggingasjóðs sjálfstætt starfandi einstaklinga – skipunarbréf |
| 29.1.2021 | Þroskahjálp | Anna Lára Steindal | Þróunarsjóður innflytjendamála 2020–2021 |
| 17.2.2021 | Öryrkjabandalag Íslands | Þuríður Harpa Sigurðardóttir | Viðtalsbeiðni til ráðherra um málefni örorkulífeyrisþega |
| 19.2.2021 | Þroskahjálp | Bryndís Snæbjörnsdóttir | Þjónusta við fatlað fólk |
| 25.2.2021 | Þroskahjálp | Bryndís Snæbjörnsdóttir | Viðtalsbeiðni til ráðherra, Sjónarhóll – ráðgjafarmiðstöð |
| 10.3.2021 | Samtök atvinnulífsins | Halldór Benjamín Þorbergsson | Fundur um vinnumarkaðsmál |
| 10.3.2021 | Þroskahjálp | Árni Múli Jónasson | Herbergjasambýli og stofnanir á Íslandi |
| 11.3.2021 | Þroskahjálp | Bryndís Snæbjörnsdóttir | Almenn fræðsla og ráðgjöf á vegum Landssamtakanna Þroskahjálpar |
| 11.3.2021 | Þroskahjálp | Anna Lára Steindal | Þroskahjálp – Ungmennaráð Þroskahjálpar |
| 9.4.2021 | Þroskahjálp | Bryndís Snæbjörnsdóttir | Vegna bólusetninga við COVID-19 |
| 15.4.2021 | Öryrkjabandalag Íslands | Þuríður Harpa Sigurðardóttir | Málefni örorkulífeyrisþega |
| 27.4.2021 | Félag atvinnurekenda | Ólafur Stephensen | Hlutabótaleið |
| 5.5.2021 | Fyrirtæki í hótel- og gistiþjónustu | Guðjón Rúnarsson | Beiðni um ávarp á aðalfundi Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu |
| 5.5.2021 | Hagsmunasamtök heimilanna | Guðmundur Ásgeirsson | Áskorun til ríkisstjórnar |
| 26.5.2021 | Öryrkjabandalag Íslands | Málþing – Heimsmet í skerðingum | Beiðni um þátttöku í pallborðsumræðum |
| 3.6.2021 | Samtök atvinnulífsins | Halldór Benjamín Þorbergsson | Fundur um vinnumarkaðsmál |
| 9.6.2021 | Þroskahjálp | Árni Múli Jónasson | Fyrirspurn um frumvörp til laga um vernd mannréttinda fatlaðs fólks |
| 14.6.2021 | Samtök atvinnulífsins | Jón Rúnar Pálsson | Nefnd um skráningu atvinnusjúkdóma – skipunarbréf |
| 15.6.2021 | Þroskahjálp | Anna Lára Steindal | Félagsstarf fyrir fullorðið fatlað fólk |
| 21.6.2021 | Þroskahjálp | Anna Lára Steindal | Frístundaúrræði fyrir fötluð ungmenni |
| 24.6.2021 | Þroskahjálp | Bryndís Snæbjörnsdóttir | Viðtalsbeiðni um starf ungmennaráðs Landssamtakanna Þroskahjálpar |
| 28.6.2021 | Neytendasamtökin | Brynhildur Pétursdóttir | Aðstoð við leigjendur |
| 13.8.2021 | Samtök atvinnulífsins | Álfheiður Mjöll Sívertssen | Samstarfsnefnd um málefni Alþjóðavinnumálastofnunar – skipunarbréf |
| 13.8.2021 | Samtök atvinnulífsins | Ragnar Árnason | Samstarfsnefnd um málefni Alþjóðavinnumálastofnunar – skipunarbréf |
| 16.8.2021 | Þroskahjálp | Bryndís Snæbjörnsdóttir | Réttindagæsla fyrir fatlað fólk |
| 24.8.2021 | Þroskahjálp | Bryndís Snæbjörnsdóttir | Áskorun til flóttamannanefndar og íslenskra stjórnvalda frá Landssamtökunum Þroskahjálp |
| 26.8.2021 | Þroskahjálp | Sara Dögg | Fundur um aukna virkni og atvinnuþátttöku fatlaðs fólks á sviði nýsköpunar |
| 26.8.2021 | Öryrkjabandalag Íslands | Bergþór H.Þórðarson og Þórdís Vilborg | Fundur um aukna virkni og atvinnuþátttöku fatlaðs fólks á sviði nýsköpunar |
| 27.9.2021 | Öryrkjabandalag Íslands | Alma Ýr Ingólfsdóttir | Lögræðissviptingar og nauðungarvistanir |
| 4.10.2021 | Þroskahjálp | Bryndís Snæbjörnsdóttir | Ósk um ávarp á landsþingi Þroskahjálpar |
| 11.10.2021 | Öryrkjabandalag Íslands | Stefán Vilbergsson | Skýrsla um aðgengi á biðstöðvum Strætós bs. á landsbyggðinni |
| 27.10.2021 | Þroskahjálp | Árni Múli Jónasson | Almenn fræðsla og ráðgjöf |
| 27.10.2021 | Þroskahjálp | Árni Múli Jónasson | Ungt fólk og framtíðin, samstarf við ungmennaráð Þroskahjálpar um mótun náms- og atvinnutækifæra |
| 8.11.2021 | Bændasamtökin | Vigdís Häsler | Andleg vellíðan – bætt líðan bænda |
| 8.11.2021 | Hagsmunasamtök heimilanna | Ásthildur Lóa Þórsdóttir | Neytendaréttur á fjármálamarkaði – ráðgjöf, stuðningur og hagsmunagæsla |
| 8.11.2021 | Öryrkjabandalag Íslands | Daníel Isebarn Ágústsson og Flóki Ásgeirsson | Málefni örorkulífeyrisþega |
| 12.11.2021 | Þroskahjálp | Sara Dögg | Áfangaskýrsla vegna verkefnastjórnunar samhæfingar námsframboðs og atvinnutækifæra hjá Þroskahjálp |
| 15.11.2021 | Öryrkjabandalag Íslands | Þuríður Harpa Sigurðardóttir | Skerðingar á sérstakri uppbót á grundvelli búsetu erlendis |
| 17.11.2021 | Öryrkjabandalag Íslands | Þuríður Harpa Sigurðardóttir | Afgreiðsla umsókna um örorku- og endurhæfingarlífeyri |
| 26.11.2021 | Þroskahjálp | Unnur Helga Óttarsdóttir | Rafræn skilríki |
| 2.12.2021 | Öryrkjabandalag Íslands | Þuríður Harpa Sigurðardóttir | Viðtalsbeiðni til ráðherra um málefni fatlaðs fólks |
| 3.12.2021 | Þroskahjálp | Unnur Helga Óttarsdóttir | Ráðherra afhenti Múrbrjótinn á alþjóðlegum degi fatlaðra |
| 3.12.2021 | Öryrkjabandalag Íslands | Þuríður Harpa Sigurðardóttir | Hvatningarverðlaun Öryrkjabandalags Íslands |
| 3.12.2021 | Þroskahjálp | Unnur Helga Óttarsdóttir | Réttindavakt fyrir fatlað fólk |
| 7.12.2021 | Samtök fjármálafyrirtækja | Bernhard Bernhardsson | Samráðsnefnd gjaldskyldra aðila samkvæmt lögum um gjaldtöku vegna umboðsmanns skuldara – skipunarbréf |
| 7.12.2021 | Samtök fjármálafyrirtækja | Yngvi Örn Kristinsson | Samráðsnefnd gjaldskyldra aðila samkvæmt lögum um gjaldtöku vegna umboðsmanns skuldara – skipunarbréf |
| 15.12.2021 | Félag atvinnurekenda – FA | Ólafur Stephensen | Málefni er varða sí- og endurmenntun |
| 16.12.2021 | Öryrkjabandalag Íslands | Þuríður Harpa Sigurðardóttir | Fundur um málefni örorkulífeyrisþega |
| 21.12.2021 | Öryrkjabandalag Íslands | Þuríður Harpa Sigurðardóttir | Málefni örorkulífeyrisþega |
| 22.12.2021 | Þroskahjálp | Árni Múli Jónasson, Unnur Helga Óttarsdóttir og Anna Lára Steindal | Viðtalsbeiðni til ráðherra um framkvæmd við nýtingu stafrænnar tækni og við stafræna þróun með tilliti til réttinda fatlaðs fólks |
| 30.12.2021 | Þroskahjálp | Árni Múli Jónasson, Unnur Helga Óttarsdóttir og Anna Lára Steindal | Fundur með ráðherra um framkvæmd við nýtingu stafrænnar tækni og við stafræna þróun með tilliti til réttinda fatlaðs fólks |
| 12.1.2022 | Samtök atvinnulífsins | Halldór Benjamín Þorbergsson | Fundur um vinnumarkaðsmál |
| 12.1.2022 | Öryrkjabandalag Íslands | Þuríður Harpa Sigurðardóttir | Boð til ráðherra í Samfélagsvaktina |
| 13.1.2022 | Neytendasamtökin | Brynhildur Pétursdóttir | Netverslun – Netsvindl – Netnjósnir |
| 13.1.2022 | Þroskahjálp | Árni Múli Jónasson | Gerð fræðsluefnis um NPA á auðlesnu máli |
| 14.1.2022 | Samtök atvinnulífsins | Íris Mist Arnardóttir | Nefnd um atvinnumál útlendinga – skipunarbréf |
| 14.1.2022 | Samtök atvinnulífsins | Ragnar Árnason | Nefnd um atvinnumál útlendinga – skipunarbréf |
| 17.1.2022 | Samtök atvinnulífsins | Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir | Boð til ráðherra um þátttöku í Menntadegi atvinnulífsins |
| 17.1.2022 | Þroskahjálp | Unnur Helga Óttarsdóttir | Viðtalsbeiðni til ráðherra um viðkvæmar persónuupplýsingar um fatlað fólk |
| 17.1.2022 | Þroskahjálp | Árni Múli Jónasson | Hlutverk samhæfingaraðila |
| 17.1.2022 | Öryrkjabandalag Íslands | Sigríður Hanna Ingólfsdóttir | Reglugerð (EB) nr. 883/2004 um samræmingu almannatryggingakerfa |
| 27.1.2022 | Öryrkjabandalag Íslands | Sigríður Hanna Ingólfsdóttir | Málefni örorkulífeyrisþega |
| 7.2.2022 | Öryrkjabandalag Íslands | Þuríður Harpa Sigurðardóttir | Viðtalsbeiðni til ráðherra um málefni fatlaðs fólks og endurskoðun á almannatryggingakerfinu |
| 9.2.2022 | Samtök atvinnulífsins | Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir | Kynning á verkefni sem unnið er í samstarfi SA við Geðhjálp |
| 18.2.2022 | Öryrkjabandalag Íslands | Sigríður Hanna Ingólfsdóttir | Málefni örorkulífeyrisþega |
| 21.2.2022 | Þroskahjálp | Árni Múli Jónasson | Málefni fatlaðs fólks |
| 24.2.2022 | Þroskahjálp | Unnur Helga Óttarsdóttir | Málefni fatlaðs fólks |
| 24.2.2022 | Öryrkjabandalag Íslands | Þuríður Harpa Sigurðardóttir | Málefni fatlaðs fólks |