Ferill 163. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 770  —  163. mál.
2. umræða.



Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á hjúskaparlögum, nr. 31/1993 (aldur hjónaefna, könnunarmenn o.fl.).

Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Berglindi Báru Sigurjónsdóttur og Svanhildi Þorbjörnsdóttur frá dómsmálaráðuneyti, Ólaf K. Ólafsson og Sigríði Kristinsdóttur frá sýslumannaráði, Arndísi Soffíu Sigurðardóttur frá sýslumanninum í Vestmannaeyjum, Indriða Ármannsson og Soffíu Svanhildar Felixdóttur frá Þjóðskrá Íslands, Brynhildi Heiðar- og Ómarsdóttur og Rut Einarsdóttur frá Kvenréttindafélagi Íslands, Stellu Hallsdóttur frá umboðsmanni barna og Hrefnu Friðriksdóttur, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands.
    Nefndinni bárust umsagnir frá Barnaheillum, Íslandsdeild Amnesty International, Kvenréttindafélagi Íslands, sýslumannaráði, umboðsmanni barna, UN Women á Íslandi og Þjóðskrá Íslands, auk þess barst minnisblað frá dómsmálaráðuneytinu.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem varða undanþáguheimild vegna lágmarksaldurs til þess að stofna til hjúskapar, könnun hjónavígsluskilyrða og lögsögu í hjónaskilnaðarmálum auk þess sem lagt er til að verkefni færist frá ráðuneytinu til sýslumanna.

Umfjöllun nefndarinnar.
Aldur hjónaefna.
    Með frumvarpinu er lagt til að felld verði brott heimild til undanþágu frá því að einstaklingur yngri en 18 ára megi ganga í hjúskap. Í umsögnum um málið og fyrir nefndinni kom fram mikill samhljómur um mikilvægi þessarar breytingar. Meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið og bendir á að með því er íslensk löggjöf færð til samræmis við alþjóðleg tilmæli og skuldbindingar og breytingar sem gerðar hafa verið á löggjöf annars staðar á Norðurlöndunum.

Könnun á hjónavígsluskilyrðum.
    Með 4. gr. frumvarpsins er lagt til að könnun á hjónavígsluskilyrðum fari einungis fram hjá sýslumönnum, hvort sem hjónaefni eiga lögheimili hér á landi eða ekki. Í ákvæðinu er mælt fyrir um þá meginreglu að könnun á hjónavígsluskilyrðum skuli fara fram í lögsagnarumdæmi þar sem annað hjónaefna á lögheimili. Þá er lagt til í 8. gr. frumvarpsins að ráðherra verði heimilt að ákveða með reglugerð að könnun á hjónavígsluskilyrðum og viðurkenning á hjónavígslu verði á hendi eins sýslumanns.
    Fyrir nefndinni kom fram að þessi breyting væri til þess fallin að stuðla að samræmdara verklagi, sérstaklega ef könnun hjónavígsluskilyrða verði færð til eins sýslumannsembættis, ekki síst varðandi mat á gögnum frá erlendum ríkisborgurum sem ætla að ganga í hjúskap hér á landi. Telur meiri hlutinn mikilvægt að samhliða þessari breytingu verði lögð áhersla á að einfalda ferlið með rafrænum lausnum.

Viðurkenning á hjónavígslu sem stofnað er til erlendis.
    Í 5. gr. frumvarpsins er kveðið á um viðurkenningu á hjónavígslum sem stofnað er til erlendis. Í 2. mgr. ákvæðisins er fjallað sérstaklega um viðurkenningu á hjúskap sem stofnað er til erlendis þegar einstaklingur hefur ekki náð 18 ára aldri. Meginreglan verði sú að slíkur hjúskapur sé ekki viðurkenndur hér á landi. Þó verði veitt þröng heimild til að víkja frá því og viðurkenna hjúskap hér á landi hjá einstaklingi sem var yngri en 18 ára þegar hjónavígsla fór fram, ef sérstaklega stendur á og ótvíræðir hagsmunir krefjast þess og með þeim skilyrðum að hjúskapurinn sé viðurkenndur í því landi þar sem hjónavígslan fór fram og að viðkomandi hafi á þeim tíma náð 16 ára aldri.
    Meiri hlutinn hefur skilning á nauðsyn þess að slík undanþáguheimild sé til staðar í lögunum en undirstrikar mikilvægi þess að undanþágan verði túlkuð þröngt og að einstaklingsbundið mat fari fram í hverju tilviki með hliðsjón af aðstæðum og hagsmunum barns. Sérstaklega var tekið til skoðunar hvort þörf væri á því að mæla fyrir um 16 ára aldursmark. Meiri hlutinn telur eðlilegt að hafa slíkt viðmið í lögunum með hliðsjón af þeirri meginreglu að taka skuli tillit til skoðana barns í samræmi við aldur þess og þroska. Við mat á undantekningartilvikum geta vegist á hagsmunir er varða rétt barns til verndar annars vegar og friðhelgi einkalífs sem og vernd þeirra réttinda sem geta fylgt því að ganga í hjúskap, svo sem erfðaréttinda, hins vegar. Ávallt skal taka mið af því sem er barni fyrir bestu og með því að mæla fyrir um lágmarksaldur er skýrt að ekki sé hægt að fallast á að yngri einstaklingar geti undir neinum kringumstæðum haft hagsmuni af því að ganga í hjúskap.
    Við umfjöllun nefndarinnar var bent á að ef einstaklingar koma hingað til lands mörgum árum eftir að til hjúskapar er stofnað sé ekkert því til fyrirstöðu að viðkomandi einstaklingar gangi tafarlaust í hjónaband, ef hjúskapur þeirra er ekki viðurkenndur hér á landi. Meiri hlutinn ítrekar að ef synjað er viðurkenningar á hjúskap verði leitast við að aðstoða þá einstaklinga sem í hlut eiga í samræmi við aðstæður og eftir því sem þörf krefur og upplýsa þá um réttarstöðu sína og úrræði.

Breytingartillögur meiri hlutans.
Stafræn könnun hjónavígsluskilyrða (ný grein).
    Í minnisblaði dómsmálaráðuneytisins til nefndarinnar kemur fram að til standi að gera breytingar á verklagi við könnun hjónavígsluskilyrða sem miða að því að innleiða vefviðmót fyrir rafrænar umsóknir um könnun hjónavígsluskilyrða. Tillögur að nýju verklagi felist í því að könnunarmanni verði heimilað að afla upplýsinga um hjónaefni með uppflettingu hjá Þjóðskrá Íslands og eftir atvikum að afla gagna hjá sýslumönnum og dómstólum til að staðfesta hver viðkomandi er. Vegna þessa leggur ráðuneytið til að breytingar verði gerðar á 13. gr. hjúskaparlaga. Í fyrsta lagi komi fram í lögunum að yfirlýsing hjónaefna um að ekkert tálmi fyrirhuguðum hjúskap geti verið rafræn. Í öðru lagi, að könnunarmanni verði heimilt að afla upplýsinga um fæðingarvottorð, hjúskaparstöðu og upplýsingar um lok fyrri hjúskapar frá Þjóðskrá Íslands, sýslumönnum og dómstólum, sem beri að veita könnunarmanni rafrænan aðgang að umbeðnum upplýsingum eða gögnum og að könnunarmanni beri að upplýsa hjónaefni um fyrirhugaða upplýsingaöflun í samræmi við ákvæði laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
    Meiri hlutinn telur mikið framfaraskref felast í stafrænni stjórnsýslu og telur þær breytingar sem ráðuneytið leggur til vera til bóta. Í minnisblaði dómsmálaráðuneytisins er tekið fram að verði breytingarnar samþykktar þurfi að fara fram samráð við innviðaráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið um nánari útfærslu gjaldtöku fyrir vottorð útgefin af Þjóðskrá Íslands og áhrif nýja verklagsins á rekstur þeirrar stofnunar. Bendir ráðuneytið á að rekstrartekjur stofnunarinnar muni að líkindum lækka með breyttu verklagi, enda söluandvirði vottorða sem stofnunin gefur út í dag nýtt til að fjármagna rekstur hennar að hluta.
    Meiri hlutinn fellst á tillögu ráðuneytisins um breytingar á 13. gr. hjúskaparlaga og leggur til að við frumvarpið bætist ný grein í því skyni. Áréttar meiri hlutinn einnig tilvitnuð orð ráðuneytisins um að fundin verði lausn til að mæta tekjutapi Þjóðskrár Íslands sem vænta má að leiði af breytingunni. Lagt er til að breyting þessi öðlist gildi 1. september 2022.

Dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar samkvæmt útlendingalögum (10. gr.).
    Við umfjöllun nefndarinnar um viðurkenningu á hjónavígslu sem stofnað er til erlendis, sbr. kafla þar um framar, kom fram að reyna kynni á sjónarmið um viðurkenningu á hjúskap fyrir einstaklinga undir 18 ára aldri þegar óskað er eftir heimild til fjölskyldusameiningar á grundvelli laga um útlendinga, nr. 80/2016. Í 1. mgr. 70. gr. þeirra laga koma fram skilyrði fyrir því að veita megi útlendingi dvalarleyfi hyggist hann flytjast hingað til lands til að búa með maka sínum eða sambúðarmaka. Meðal skilyrða er að hvor aðili um sig hafi verið eldri en 18 ára þegar stofnað var til hjúskaparins eða sambúðarinnar.
    Í minnisblaði dómsmálaráðuneytisins til nefndarinnar kemur fram að misræmi kunni að verða á milli hjúskaparlaga og útlendingalaga að þessu leyti verði frumvarpið sem hér er til umfjöllunar að lögum óbreytt. Er því lagt til að við frumvarpið bætist ákvæði um breytingu á 1. mgr. 70. gr. útlendingalaga þannig að við mat á því hvort veitt verði dvalarleyfi á grundvelli greinarinnar verði heimilt að líta til þess hvort hjúskapur, sem til var stofnað áður en hjónaefni varð 18 ára, hafi verið viðurkenndur samkvæmt úrskurði sýslumanns eða ráðuneytis skv. 25. gr. a hjúskaparlaga. Meiri hlutinn fellst á tillöguna og leggur til breytingu á 10. gr. frumvarpsins þar að lútandi.
    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Orðin „og 3. málsl. 3. mgr. 13. gr.“ í 3. gr. falli brott.
     2.      Á eftir 3. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
                  Í stað 2.–3. mgr. 13. gr. laganna koma þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
                  Hjónaefni skulu lýsa því yfir, með skriflegri yfirlýsingu eða á rafrænu eyðublaði undirrituðu með fullgildum rafrænum skilríkjum, að viðlögðum drengskap, að þau viti ekki um tálma á fyrirhuguðum hjúskap sínum. Könnunarmaður krefur hjónaefni til tryggingar um vottorð tveggja áreiðanlegra svaramanna er báðir ábyrgjast að enginn lagatálmi sé á fyrirhuguðum hjúskap. Sýslumaður getur leyft ef sérstaklega stendur á að vikið sé frá þessu, þar á meðal að aðeins einn svaramaður undirriti vottorð.
                  Ráðherra setur reglugerð um könnun á hjónavígsluskilyrðum, þar á meðal um þau skilríki sem krefja skal hjónaefni um við gæslu þessara skilyrða, svo sem gögn til staðfestingar á fæðingu, hjúskaparstöðu og um lok fyrri hjúskapar frá þar til bæru yfirvaldi. Könnunarmanni er heimilt að afla framangreindra upplýsinga eða gagna hjá Þjóðskrá Íslands, sýslumönnum og dómstólum með rafrænum hætti. Framangreindum aðilum ber að veita könnunarmanni rafrænan aðgang að umbeðnum upplýsingum eða gögnum búi þeir yfir þeim.
                  Afli könnunarmaður nauðsynlegra upplýsinga eða gagna við könnun hjónavígsluskilyrða skv. 2. málsl. 3. mgr. ber honum að upplýsa hjónaefni um fyrirhugaða upplýsingaöflun í samræmi við 2. mgr. 17. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
     3.      Í stað orðanna „Þó skal 4. gr.“ í 9. gr. komi: Þó skulu 4. og 5. gr.
     4.      Við 10. gr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Lög um útlendinga, nr. 80/2016: Á eftir 4. málsl. 1. mgr. 70. gr. laganna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Hafi verið stofnað til hjúskapar erlendis áður en aðili náði 18 ára aldri er þó heimilt að líta til þess hvort hjúskapur hafi verið viðurkenndur með úrskurði sýslumanns eða ráðuneytis skv. 25. gr. a hjúskaparlaga, nr. 31/1993, og verið skráður í þjóðskrá.

    Bergþór Ólason og Eyjólfur Ármannsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Birgir Þórarinsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.

Alþingi, 29. mars 2022.

Bryndís Haraldsdóttir,
form.
Jóhann Friðrik Friðriksson,
frsm.
Birgir Þórarinsson.
Hilda Jana Gísladóttir. Iða Marsibil Jónsdóttir. Jódís Skúladóttir.