Ferill 543. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 775  —  543. mál.




Fyrirspurn


til menningar- og viðskiptaráðherra um rekstur skáldahúsa.

Frá Hildu Jönu Gísladóttur.


     1.      Hvernig er aðkomu eða stuðningi ríkisins við rekstur skáldahúsa háttað? Er aðkoman/ stuðningurinn samræmdur?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að ríkið komi að rekstri skáldahúsanna Nonnahúss, Sigurhæða og Davíðshúss á Akureyri? Ef svo er, hvernig? Ef svo er ekki, hvers vegna?


Skriflegt svar óskast.