Ferill 318. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 781 — 318. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940 (erlend mútubrot).
Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Hinriku Söndru Ingimundardóttur og Kjartan Ólafsson frá dómsmálaráðuneytinu.
Með frumvarpinu er brugðist við tilmælum sem koma fram í skýrslu vinnuhóps Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) frá desember 2020 vegna fjórðu úttektar um framkvæmd Íslands á samningi um baráttu gegn mútugreiðslum til erlendra opinberra starfsmanna í alþjóðlegum viðskiptum. Lagðar eru til breytingar á 109. gr. og 264. gr. a almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, þannig að refsihámark hækki úr 5 árum í 6 ár. Með þeirri breytingu mun einnig verða heimilt að beita upptökuákvæði í 1. mgr. 69. gr. b vegna brota gegn 109. gr. Til viðbótar eru lagðar til breytingar á 264. gr. a til að samræma ákvæðið betur við kröfur mútusamningsins. Loks er lögð til breyting á 5. mgr. 81. gr. um fyrningu refsiábyrgðar lögaðila, sem hækkar úr 5 árum í 10 ár, vegna brota gegn 109. gr. og 1. mgr. 264. gr. a í lögunum.
Meiri hlutinn leggur til breytingu á frumvarpinu sem er tæknilegs eðlis. Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
Við 3. gr.
a. Orðin „og 2.“ í c-lið falli brott.
b. Á eftir c-lið komi nýr stafliður, svohljóðandi: Í stað orðanna „í bága við starfsskyldur sínar“ í 2. mgr. kemur: sem tengist starfsskyldum hans.
Bergþór Ólason og Eyjólfur Ármannsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Birgir Þórarinsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Alþingi, 29. mars 2022.
Bryndís Haraldsdóttir, form., frsm. |
Birgir Þórarinsson. | Hilda Jana Gísladóttir. |
Iða Marsibil Jónsdóttir. | Jódís Skúladóttir. | Jóhann Friðrik Friðriksson. |