Ferill 559. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 793 — 559. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um samtvinnun jafnréttis- og byggðamála.
Frá Hildu Jönu Gísladóttur.
1. Hvaða kyngreinanlegu gögn sem tengjast samtvinnun jafnréttis- og byggðamála eru til? Hvernig eru slík gögn notuð?
2. Stendur til að leggja áherslu á aðgerðir sem miða að kynjajafnrétti á landsbyggðinni með markvissum hætti? Ef svo er, hvernig?
Skriflegt svar óskast.