Ferill 303. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 805  —  303. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um útgjöld til nýframkvæmda í vegakerfinu.


     1.      Hver var og er áætluð heildarfjárfesting Vegagerðarinnar í nýframkvæmdum í vegakerfinu á árunum 1999–2024 miðað við uppgjör Vegagerðarinnar annars vegar og fyrirliggjandi samgönguáætlun til fimm ára hins vegar, sundurliðað eftir árum, uppfært til núverandi verðlags?
    Í eftirfarandi töflu má sjá lista yfir fjárveitingar til nýframkvæmda og rauntölur um útgjöld sömu ár þar sem þær upplýsingar liggja fyrir. Heimildir eru samgönguáætlanir og fjárhagskerfi ríkisins. Við uppfærslu verðlags er notuð vísitala Vegagerðarinnar. Vegna breytinga í uppsetningu á bókhaldskerfi var ekki unnt að finna sambærilegar rauntölur fyrir árin 1999– 2002.

Ár Fjárveiting til nýframkvæmda [milljarðar króna] – uppfært Rauntölur miðað við uppgjör [milljarðar króna] – uppfært
1999 12,058
2000 12,904
2001 14,625
2002 14,357
2003 22,599 18,964
2004 17,169 20,576
2005 14,512 14,769
2006 14,116 16,795
2007 19,891 20,751
2008 39,479 32,499
2009 25,511 23,575
2010 13,247 17,991
2011 8,638 8,295
2012 7,935 6,700
2013 8,330 7,815
2014 8,508 11,248
2015 11,370 9,734
2016 11,261 10,942
2017 12,114 11,363
2018 14,631 11,157
2019 13,849 15,746
2020 20,645 19,667
2021 23,476 19,675*
2022
2023
2024
*Eru bráðabirgðatölur þar sem vinnu við lokauppgjör 2021 er ekki lokið.

    Í samgönguáætlun er gert ráð fyrir 1,5 milljarða kr. hærra framlagi á árunum 2022–2024.

     2.      Hvert er hlutfall nýfjárfestingar í vegagerð af heildarútgjöldum ríkissjóðs fyrir hvert ár tímabilsins, miðað við fyrirliggjandi uppgjör annars vegar og áætlun um þróun ríkisútgjalda til ársins 2024 hins vegar?
    Í töflunni hér að aftan má sjá lista yfir nýfjárfestingar miðað við heildarútgjöld og hlutfallið þar á milli. Heimildir eru samgönguáætlanir, fjárhagskerfi ríkisins og Hagstofa Íslands. Vegna breytinga í uppsetningu á bókhaldskerfi var ekki unnt að finna sambærilegar rauntölur fyrir árin 1999–2002.

Ár Rauntölur miðað við uppgjör [milljarðar kr.] Heildarútgjöld ríkisins Hlutfall af ríkisútgjöldum %
1999
2000
2001
2002
2003 8,086 317,713 2,5
2004 9,102 340,603 2,7
2005 6,735 360,894 1,9
2006 8,216 412,365 2,0
2007 10,801 470,462 2,3
2008 18,643 822,674 2,3
2009 15,974 679,827 2,3
2010 12,190 643,551 1,9
2011 6,074 709,740 0,9
2012 5,215 678,590 0,8
2013 6,440 693,557 0,9
2014 9,372 717,792 1,3
2015 8,508 752,556 1,1
2016 9,779 904,576 1,1
2017 10,289 843,658 1,2
2018 10,182 914,197 1,1
2019 14,378 967,327 1,5
2020 19,667 1.091,084 1,8
2021 19,675*
2022 16,645
2023 16,246
2024 12,644
*Eru bráðabirgðatölur þar sem vinnu við lokauppgjör 2021 er ekki lokið.

     3.      Hvert er hlutfall framlaga til nýframkvæmda í vegagerð af vergri landsframleiðslu fyrir hvert ár tímabilsins?
    Í eftirfarandi töflu má sjá lista yfir nýframkvæmdir og hlutfall vergrar landsframleiðslu. Heimildir eru samgönguáætlanir, fjárhagskerfi ríkisins og Hagstofa Íslands. Vegna breytinga í uppsetningu á bókhaldskerfi var ekki unnt að finna sambærilegar rauntölur fyrir árin 1999– 2002.

Ár Rauntölur miðað við uppgjör [milljarðar kr.] VLF Hlutfall af VLF %
1999
2000
2001
2002
2003 8,086 876,733 1,1
2004 9,102 970,421 0,8
2005 6,735 1.061,428 0,6
2006 8,216 1.225,716 0,6
2007 10,801 1.386,951 0,7
2008 18,643 1.589,625 1,4
2009 15,974 1.626,391 1,1
2010 12,190 1.680,967 0,5
2011 6,074 1.765,009 0,4
2012 5,215 1.845,160 0,3
2013 6,440 1.970,146 0,3
2014 9,372 2.086,360 0,3
2015 8,508 2.310,848 0,4
2016 9,779 2.512,055 0,4
2017 10,289 2.642,423 0,4
2018 10,182 2.835,889 0,5
2019 14,378 3.019,377 0,4
2020 19,667 2.940,000 0,7
2021 19,675*
2022
2023
2024
*Eru bráðabirgðatölur þar sem vinnu við lokauppgjör 2021 er ekki lokið.