Ferill 578. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 819 — 578. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um að Garðyrkjuskólinn á Reykjum verði sjálfseignarstofnun.
Flm.: Guðrún Hafsteinsdóttir, Birgir Þórarinsson, Guðbrandur Einarsson, Georg Eiður Arnarson, Ásmundur Friðriksson, Vilhjálmur Árnason, Oddný G. Harðardóttir.
Alþingi ályktar að fela mennta- og barnamálaráðherra að leggja fyrir Alþingi frumvarp þess efnis að Garðyrkjuskólinn á Reykjum verði gerður að sjálfseignarstofnun og ráðherra falið að gera þjónustusamning við stofnunina. Samhliða verði unnin fjármögnuð og tímasett áætlun um viðhald og uppbyggingu kennsluhúsnæðis og svæðisins á Reykjum. Markmið frumvarpsins verði að styrkja sjálfstæði Garðyrkjuskólans sem starfsmenntaskóla og fjölga valkostum til náms fyrir fólk á öllum aldri.
Frumvarpið verði lagt fram í upphafi haustþings 2022.
Greinargerð.
Garðyrkjuskólinn á Reykjum hefur verið starfræktur í rúm 80 ár en árið 1936 voru samþykkt lög á Alþingi um skólann þar sem staðsetningin að Reykjum var ákveðin. Árið 2005 voru Garðyrkjuskólinn á Reykjum, Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri og Rannsóknastofnun landbúnaðarins (RALA) sameinuð í eina stofnun, Landbúnaðarháskóla Íslands. Í upphafi var ekki gert ráð fyrir að Garðyrkjuskólinn væri hluti af sameiningunni en í meðförum Alþingis var frumvarpinu breytt. Sameiningin reyndist umdeild og þannig segir t.d. formaður Félags garðplöntuframleiðenda, í afmælisgrein um Garðyrkjuskólann sem birtist í Bændablaðinu 5. desember 2019, að hún hafi reynst óheillaspor. Starfsmenntanám og háskólanám fari ekki vel saman og aðvörunarorðum hagsmunaaðila og velunnara skólans þar að lútandi hafi ekki verið sinnt.
Í ársbyrjun 2021 tilkynnti Lilja Alfreðsdóttir, þáverandi mennta- og menningarmálaráðherra, ákvörðun sína um að hefja skyldi undirbúning tilfærslu starfsmenntanáms í garðyrkju á Reykjum í Ölfusi undir ábyrgð Fjölbrautaskóla Suðurlands og þar með frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Flutningsmenn telja að það verði önnur óheillaför enda samlegð með annarri starfsemi Fjölbrautaskóla Suðurlands lítil sem engin. Nýnemar Fjölbrautaskóla Suðurlands eru til að mynda unglingar á aldursbilinu 16–18 ára en mun eldra fólk velur að hefja nám í Garðyrkjuskólanum. Sjálfstæðir starfsmenntaskólar eru þannig öflugur valkostur fyrir fólk á öllum aldri og atvinnulífinu nauðsynlegir.
Brýnt er að renna styrkum stoðum undir Garðyrkjuskólann sem sjálfseignarstofnun með þjónustusamningi við ríkið. Húsakostur skólans er í mikilli niðurníðslu og brýnt að áætlun sé gerð um viðhald og uppbyggingu kennsluhúsnæðis og svæðisins alls sem er fjármögnuð og tímasett. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er rætt um mikilvægi matvælaframleiðslu og sjálfbærni. Lykillinn að því að ná árangri á þeim sviðum er meðal annars að bjóða upp á nám hér á landi í ræktun og umhverfisvernd. Garðyrkja nýtur vaxandi hylli á Íslandi og þegar horft er til aðgerða stjórnvalda til að bregðast við loftslagsvandanum skýtur skökku við að stefna eigi námi í garðyrkjufræðum í voða og að fyrirhugað sé að veikja skólastigið fremur en styrkja.