Ferill 672. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 971 — 672. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um einkarekna heilsugæslustöð á Akureyri.
Flm.: Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Birgir Þórarinsson, Hildur Sverrisdóttir, Haraldur Benediktsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Óli Björn Kárason, Bryndís Haraldsdóttir, Vilhjálmur Árnason.
Alþingi ályktar að heilbrigðisráðherra feli Sjúkratryggingum Íslands að bjóða út rekstur heilsugæslu á Akureyri.
Greinargerð.
Þá hefur reynslan af einkareknum heilsugæslustöðvum verið góð og njóta þær almennt meira trausts en aðrar heilsugæslustöðvar, sbr. þjónustukönnun Maskínu fyrir allar 19 heilsugæslustöðvarnar á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 2019. Þar kom fram að allar fjórar einkareknu heilsugæslustöðvar höfuðborgarsvæðisins voru ofarlega á lista yfir þær heilsugæslustöðvar sem nutu mests trausts, en þær voru allar meðal sjö efstu heilsugæslustöðva í könnuninni. Í sömu könnun var spurt um ánægju viðskiptavina með þá þjónustu sem heilsugæslustöðvarnar buðu upp á og var niðurstaðan aftur afgerandi, en einkareknu heilsugæslustöðvarnar fjórar röðuðu sér í fjögur efstu sætin.
Kostir einkarekinna heilsugæslustöðva eru ótvíræðir og því full ástæða til þess að bjóða ekki einungis upp á þann kost á höfuðborgarsvæðinu heldur einnig að tryggja landsbyggðinni möguleika á að nýta sér þjónustu þeirra.