Ferill 559. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 972  —  559. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Hildu Jönu Gísladóttur um samtvinnun jafnréttis- og byggðamála.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvaða kyngreinanlegu gögn sem tengjast samtvinnun jafnréttis- og byggðamála eru til? Hvernig eru slík gögn notuð?
     2.      Stendur til að leggja áherslu á aðgerðir sem miða að kynjajafnrétti á landsbyggðinni með markvissum hætti? Ef svo er, hvernig?


    Samkvæmt forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 6/2022, fer forsætisráðuneytið með mál er varða jafnrétti, þar á meðal lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna (jafnréttislög), lög um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna, lög um jafna meðferð á vinnumarkaði og lög um kynrænt sjálfræði. Jafnréttisstofa, kærunefnd jafnréttismála og Jafnréttissjóður Íslands heyra einnig undir ráðuneytið. Jafnréttismál snerta engu að síður starfssvið allra ráðuneyta og mörg þeirra fara með viðamikla málaflokka sem geta haft úrslitaáhrif á stöðu og þróun jafnréttismála hér á landi.
    Í gildi er stefnumótandi byggðaáætlun fyrir tímabilið 2018–2024. Skv. 3. gr. laga um byggðaáætlun og sóknaráætlanir, nr. 69/2015, skal ráðherra leggja á minnsta kosti þriggja ára fresti fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun til fimmtán ára í senn. Byggðaáætlun er lýsing á stefnu ríkisins í byggðamálum hverju sinni og samhæfing við aðra stefnumótun og áætlanagerð hins opinbera. Byggðaáætlun skal hafa að meginmarkmiði að jafna tækifæri allra landsmanna til atvinnu og þjónustu, jafna lífskjör og stuðla að sjálfbærri þróun byggðarlaga um land allt. Sérstök áhersla skal lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf. Þá skal í byggðaáætlun mörkuð aðgerðaáætlun til næstu fimm ára. Fyrir þinginu liggur nú tillaga innviðaráðherra að endurskoðaðri byggðaáætlun fyrir árin 2022– 2036. Í greinargerð með tillögunni kemur m.a. fram að við endurskoðunina hafi verið stigið skref í þá átt að samhæfa kynja- og jafnréttissjónarmið og byggðasjónarmið þannig að byggðastefna nýtist öllum óháð búsetu og stuðli þannig að sem mestu jafnvægi í byggð landsins. Byggðamál, þar á á meðal stefnumótandi byggðaáætlun og aðgerðaáætlunin, eru á málefnasviði innviðaráðherra, sbr. 6. tölul. 7. gr. forsetaúrskurðar nr. 6/2022, sbr. og 7. gr. forsetaúrskurðar nr. 7/2022. Ber innviðaráðherra því ábyrgð á framkvæmd byggðaáætlunar og stefnumótun á því málefnasviði, þ.m.t. samþættingu málaflokksins við jafnréttissjónarmið.
    Núgildandi byggðaáætlun samanstendur af 54 aðgerðum. Forsætisráðuneytið ber ábyrgð á tveimur aðgerðum en hefur falið Jafnréttisstofu framkvæmd þeirra beggja. Um er að ræða annars vegar aðgerð um atvinnuþátttöku og tekjumun eftir búsetu (B.18) og hins vegar aðgerð um fleiri konur í sveitastjórnir (C.11). Eftirfarandi svar forsætisráðherra tekur samkvæmt framangreindu einungis mið af þeim aðgerðum.


Atvinnuþátttaka og tekjumunur eftir búsetu.
    Aðgerðin felur í sér að framkvæma úttekt á stöðu og tækifærum kvenna og karla á vinnumarkaði í dreifbýli. Úttektinni er ætlað að skoða hvernig hægt sé að auka atvinnumöguleika kvenna sem hæfa háu menntunarstigi.
    Gögnum var safnað með viðtölum við konur sem búa á landsbyggðinni og hafa grunnmenntun eða framhaldsmenntun á háskólastigi. Hópi viðmælenda var skipt í tvo hópa; konur sem höfðu umtalsverða reynslu af störfum sem tengdust sérfræðimenntun þeirra og yngri konur sem höfðu lokið námi og höfðu nýlega hafið störf sem tengdust menntun þeirra.
    Í rannsókninni er leitast við að fá svör viðmælenda við spurningum sem tengjast menntun þeirra og búsetu, atvinnumöguleikum og upplifun þeirra á kynskiptum vinnumarkaði. Þá var sérstaklega spurt um hugmyndir þeirra um möguleika á störfum sem flokkast gætu undir störf án staðsetningar.
    Helstu niðurstöður gefa til kynna að það vanti samþættingu kynjasjónarmiða í skrif og umræður um störf án staðsetningar, það vanti kynjagreiningu á störfum sem mögulegt er að auglýsa án staðsetningar og að skoða þurfi hvort störf án staðsetningar nýtist frekar einu kyni umfram önnur. Skýrslan verður gefin út í maí og m.a. birt á vefsíðu Jafnréttisstofu.
    Eftirfarandi tillögur að úrbótum og frekari rannsóknum eru settar fram:
     –      Í ákvarðanatöku og stefnumótun verði gætt að áhrifum kynskipts vinnumarkaðar á markmið um störf án staðsetningar.
     –      Í tengslum við atvinnu- og byggðastefnu verði gerð greining á áhrifum kynskipts vinnumarkaðar á landsbyggðinni.
     –      Í tengslum við atvinnu- og byggðastefnu og loftslagsmarkmið verði mótuð stefna um samræmda fjarfundi á vegum hins opinbera.
     –      Gert verði sérstakt átak til að fjölga starfsstöðvum þar sem fólk getur haft aðstöðu til að sinna störfum án staðsetningar.

Fleiri konur í sveitastjórnir.
    Aðgerðin felur í sér gerð og birtingu auglýsingaherferðar til að hvetja konur til þátttöku í stjórnun nærsamfélagsins. Eftir sveitarstjórnarkosningar 2018 var hlutfall kvenna á landsvísu 47% sem er hærra en áður hefur verið. Hins vegar er staðan mjög mismunandi eftir sveitarfélögum. Herferðinni er ætlað að hvetja framboð til að standa vörð um jafnrétti kynja og stilla upp listum sem spanna vel fjölbreytt litróf mannlífsins. Herferðin var áberandi á samfélagsmiðlum í janúar og febrúar sl. og fer aftur í gang í lok apríl 2022.
    Kjósendur verða þá hvattir til að kjósa fjölbreytileika.

    Óski fyrirspyrjandi eftir frekari upplýsingum um málefnið ber að beina fyrirspurn þar að lútandi til innviðaráðherra, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga um þingsköp Alþingis.