Ferill 556. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 981 — 556. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Hildu Jönu Gísladóttur um skipan í stjórnir, starfshópa, nefndir, ráð o.þ.h.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig skiptist búseta þeirra sem skipuð hafa verið í stjórnir, starfshópa, nefndir, ráð o.þ.h. á vegum ráðuneytisins og stofnana þess eftir sveitarfélögum?
Á vegum dómsmálaráðuneytisins og stofnana þess eru skipaðir 124 einstaklingar í stjórnir, starfshópa, nefndir og ráð og skiptast þeir eftir sveitarfélögum þannig:
| Reykjavík | 81 |
| Kópavogur | 13 |
| Seltjarnarnes | 7 |
| Garðabær | 6 |
| Hafnarfjörður | 4 |
| Mosfellsbær | 4 |
| Akureyri | 2 |
| Selfoss | 2 |
| Hvolsvöllur | 1 |
| Sauðárkrókur | 1 |
| Ísafjörður | 1 |
| Borgarnes | 1 |
| Blönduós | 1 |