Ferill 542. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 988  —  542. mál.




Svar


menningar- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn frá Hildu Jönu Gísladóttur um Amtsbókasafnið á Akureyri.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Stendur til að gera langtímasamning við Amtsbókasafnið á Akureyri sem eitt af varðveislusöfnum landsins, sbr. 2. gr. laga um skylduskil til safna, nr. 20/2002? Ef svo er, hvenær? Ef svo er ekki, hvers vegna?

    Samkvæmt lögum um skylduskil til safna, nr. 20/2002, er Amtsbókasafninu á Akureyri gert að varðveita skyldueintök. Frá síðustu aldamótum hafa verið gerðir samningar um samstarf ríkis og Akureyrarbæjar um menningarmál á Akureyri. Var það tilgreint sem eitt af meginverkefnum samninganna að Amtsbókasafnið gæti gegnt hlutverki sínu sem eitt af skylduskilasöfnum í landinu skv. ákvæðum laga og því ljóst að hluta þeirra fjármuna sem ríkið lagði fram vegna samninganna var ætlað að aðstoða safnið við að sinna þessu lögbundna verkefni.
    Við endurnýjun á áðurnefndum samningum var þetta atriði lengst af tilgreint með sama hætti en við undirbúning samnings fyrir tímabilið 2013–2015 var það fellt út að beiðni Akureyrarbæjar. Var bent á að ákvæðið hafi að mörgu leyti verið barns síns tíma og á sínum tíma fyrst og fremst til komið sem stuðningur ríkisins við byggingu geymsluhúsnæðis fyrir Amtsbókasafnið, sem nýttist ekki síst fyrir skylduskil. Leita átti leiða til að fela Landsbókasafni Íslands – háskólabókasafni samskiptin við Amtsbókasafnið vegna skylduskila og bæta kostnaði sem af þeim hlytist inn í árlegar fjárveitingar safnsins. Kostnaði vegna skylduskila til Amtsbókasafnsins á Akureyri var mætt með viðauka við menningarsamninginn 2017–2019 en skylduskilaverkefnið var aftur tekið út við endurnýjun 2020.
    Hafin er vinna í menningar- og viðskiptaráðuneyti til að endurskoða lög um skylduskil til safna. Núgildandi lög eru frá árinu 2002 og þörf á að uppfæra þau í takt við rafrænt umhverfi auk þess sem nauðsynlegt er að meta skylduskilaþörfina miðað við stafræna varðveislu. Samhliða þeirri vinnu verður leitast við að fjármagna skylduskilaverkefnið í fjárlagavinnu næstu ára.