Ferill 555. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 994 — 555. mál.
Svar
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Hildu Jönu Gísladóttur um skipan í stjórnir, starfshópa, nefndir, ráð o.þ.h.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig skiptist búseta þeirra sem skipuð hafa verið í stjórnir, starfshópa, nefndir, ráð o.þ.h. á vegum ráðuneytisins og stofnana þess eftir sveitarfélögum?
Búseta 50 aðalmanna og 62 varamanna í stjórnum, starfshópum, nefndum og ráðum á vegum háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins skiptist þannig eftir sveitarfélögum:
| Búseta | Aðalmaður | Varamaður |
| Reykjavík | 29 | 48 |
| Akureyri | 1 | 3 |
| Djúpivogur | 1 | 0 |
| Garðabær | 5 | 3 |
| Hafnarfjörður | 2 | 1 |
| Kópavogur | 5 | 6 |
| Mosfellsbær | 2 | 0 |
| Sauðárkrókur | 2 | 0 |
| Seltjarnarnes | 2 | 1 |
| Seyðisfjörður | 1 | 0 |