Ferill 557. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 996 — 557. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Hildu Jönu Gísladóttur um skipan í stjórnir, starfshópa, nefndir, ráð o.þ.h.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig skiptist búseta þeirra sem skipuð hafa verið í stjórnir, starfshópa, nefndir, ráð o.þ.h. á vegum ráðuneytisins og stofnana þess eftir sveitarfélögum?
Í eftirfarandi töflu má sjá hvernig búseta þeirra sem skipuð hafa verið í stjórnir, starfshópa, nefndir og ráð á vegum heilbrigðisráðuneytisins skiptist. Heildarfjöldi skipaðra aðila er 306 og búseta þeirra skiptist á 24 sveitarfélög. Svarið miðast við þær stjórnir, starfshópa, nefndir og ráð sem eru starfandi á þeim tíma sem fyrirspurnin er sett fram. Svarið byggist einungis á gögnum um skipanir á vegum heilbrigðisráðuneytisins, þar sem ráðuneytið hefur ekki upplýsingar um nefndir, stjórnir og ráð á vegum undirstofnana þess.
| Sveitarfélag | Fjöldi |
| Akranes | 2 |
| Akureyri | 17 |
| Blönduós | 1 |
| Borgarbyggð | 2 |
| Dalabyggð | 3 |
| Fjarðabyggð | 1 |
| Garðabær | 23 |
| Grindavík | 2 |
| Hafnarfjörður | 15 |
| Ísafjarðarbær | 3 |
| Kópavogur | 41 |
| Mosfellsbær | 7 |
| Múlaþing | 4 |
| Rangárþing eystra | 1 |
| Rangárþing ytra | 1 |
| Reykjanesbær | 3 |
| Reykjavík | 155 |
| Seltjarnarnesbær | 13 |
| Skeiða- og Gnúpverjahreppur | 1 |
| Suðurnesjabær | 1 |
| Sveitarfélagið Árborg | 6 |
| Sveitarfélagið Ölfus | 1 |
| Sveitarfélagið Skagafjörður | 2 |
| Svíþjóð | 1 |
| Alls 24 | 306 |