Ferill 406. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 997  —  406. mál.




Svar


félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur um kærur til úrskurðarnefndar velferðarmála vegna ákvarðana Tryggingastofnunar ríkisins.


     1.      Hversu margar kærur bárust úrskurðarnefnd velferðarmála frá ársbyrjun 2016 til ársloka 2021, sundurliðað eftir árum?
    Árið 2016 bárust 506 kærur.
    Árið 2017 bárust 487 kærur.
    Árið 2018 bárust 454 kærur.
    Árið 2019 bárust 559 kærur.
    Árið 2020 bárust 679 kærur.
    Árið 2021 bárust 705 kærur.

     2.      Hversu margar af þeim kærum voru vegna ákvarðana Tryggingastofnunar ríkisins í málum á grundvelli laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, sundurliðað eftir árum?
    Árið 2016 bárust 134 kærur.
    Árið 2017 bárust 127 kærur.
    Árið 2018 barst 131 kæra.
    Árið 2019 bárust 167 kærur.
    Árið 2020 bárust 180 kærur.
    Árið 2021 bárust 169 kærur.

     3.      Hversu margar af þeim kærum voru vegna ákvarðana Tryggingastofnunar ríkisins í málum á grundvelli laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, sundurliðað eftir árum?
    Árið 2016 bárust 43 kærur.
    Árið 2017 bárust 48 kærur.
    Árið 2018 barst 51 kæra.
    Árið 2019 bárust 70 kærur.
    Árið 2020 bárust 54 kærur.
    Árið 2021 bárust 49 kærur.

     4.      Hversu mörgum umræddra kærumála var vísað frá á þeim grundvelli að Tryggingastofnun ríkisins tók mál kæranda til skoðunar á ný á meðan nefndin var með málið til umfjöllunar, sundurliðað eftir árum?
    Af þeim kærum sem bárust 2016 var engu máli vísað frá.
    Af þeim kærum sem bárust 2017 var einu máli vísað frá.
    Af þeim kærum sem bárust 2018 var þremur málum vísað frá.
    Af þeim kærum sem bárust 2019 var tveimur málum vísað frá.
    Af þeim kærum sem bárust 2020 var einu máli vísað frá.
    Af þeim kærum sem bárust 2021 og er lokið hefur þremur málum verið vísað frá.

     5.      Hver var meðalmálsmeðferðartími umræddra kærumála, þ.e. frá því að kæra barst og þar til úrskurður lá fyrir, sundurliðað eftir árum, að undanskildum málum sem var vísað frá á þeim grundvelli að kæra barst eftir að kærufrestur rann út?
    Málsmeðferðartími mála sem bárust vegna laga nr. 100/2007 eftir árum. Öll mál sem hefur verið vísað frá eru undanskilin og eru ekki með í eftirfarandi útreikningi:
    Árið 2016 var meðalmálsmeðferðartími 8,0 mánuðir.
    Árið 2017 var meðalmálsmeðferðartími 6,1 mánuður.
    Árið 2018 var meðalmálsmeðferðartími 3,5 mánuðir.
    Árið 2019 var meðalmálsmeðferðartími 3,5 mánuðir.
    Árið 2020 var meðalmálsmeðferðartími 4,4 mánuðir.
    Árið 2021 var meðalmálsmeðferðartími 4,5 mánuðir.

    Málsmeðferðartími mála sem bárust vegna laga nr. 99/2007 eftir árum:
    Árið 2016 var meðalmálsmeðferðartími 8,1 mánuður.
    Árið 2017 var meðalmálsmeðferðartími 5,7 mánuðir.
    Árið 2018 var meðalmálsmeðferðartími 3,5 mánuðir.
    Árið 2019 var meðalmálsmeðferðartími 3,0 mánuðir.
    Árið 2020 var meðalmálsmeðferðartími 4,9 mánuðir.
    Árið 2021 var meðalmálsmeðferðartími 4,0 mánuðir.

     6.      Í hversu mörgum umræddra kærumála var málsmeðferðartími hjá nefndinni lengri en þrír mánuðir, sundurliðað eftir árum?
    Málsmeðferðartími mála sem bárust vegna laga nr. 100/2007 eftir árum:
    Árið 2016 var málsmeðferðartími í 100% mála lengri en þrír mánuðir.
    Árið 2017 var málsmeðferðartími í 96% mála lengri en þrír mánuðir.
    Árið 2018 var málsmeðferðartími í 46% mála lengri en þrír mánuðir.
    Árið 2019 var málsmeðferðartími í 47% mála lengri en þrír mánuðir.
    Árið 2020 var málsmeðferðartími í 83% mála lengri en þrír mánuðir.
    Árið 2021 var málsmeðferðartími í 84% mála lengri en þrír mánuðir.

    Málsmeðferðartími mála sem bárust vegna laga nr. 99/2007 eftir árum:
    Árið 2016 var málsmeðferðartími í 100% mála lengri en þrír mánuðir.
    Árið 2017 var málsmeðferðartími í 87% mála lengri en þrír mánuðir.
    Árið 2018 var málsmeðferðartími í 51% mála lengri en þrír mánuðir.
    Árið 2019 var málsmeðferðartími í 52% mála lengri en þrír mánuðir.
    Árið 2020 var málsmeðferðartími í 94% mála lengri en þrír mánuðir.
    Árið 2021 var málsmeðferðartími í 73% mála lengri en þrír mánuðir.

     7.      Hversu oft hefur Tryggingastofnun ríkisins höfðað dómsmál til að fá úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála hnekkt, annars vegar í málum á grundvelli laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, og hins vegar á grundvelli laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, sundurliðað eftir árum?
    Tryggingastofnun hefur höfðað tvö dómsmál til að fá úrskurðum úrskurðarnefndar velferðarmála hnekkt. Bæði málin voru höfðuð á árinu 2021 og vörðuðu greiðslur á grundvelli laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007.