Ferill 613. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 998 — 613. mál.
Svar
félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Gísla Rafni Ólafssyni um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.
1. Hvernig miðar vinnu ráðuneytisins við markmið sem kemur fram á bls. 35 í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar frá 2021 um að sett verði í forgang að bæta stöðu langveikra og alvarlega fatlaðra barna og fjölskyldna þeirra með nýju fyrirkomulagi umönnunarstyrks og umönnunargreiðslna?
Vinnu ráðuneytisins miðar vel og hefur ráðherra lagt fram frumvarp til laga á Alþingi um greiðslur vegna umönnunar langveikra eða fatlaðra barna. Frumvarpinu er meðal annars ætlað að mæta þeirri áherslu sem fram kemur í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar að bæta lífskjör og lífsgæði langveikra og alvarlega fatlaðra barna og fjölskyldna þeirra með nýju fyrirkomulagi umönnunarstyrks og umönnunargreiðslna.
2. Hefur verið stefnt að því að heimila foreldrum langveikra eða alvarlega fatlaðra barna að vera að hluta í námi eða vinnu án þess að greiðslur til þeirra skerðist?
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að nám eða atvinnuþátttaka útiloki ekki umönnunaraðila langveikra eða fatlaðra barna frá því að fá greiddan umönnunarstyrk. Með því móti verði stuðningskerfið sveigjanlegra og stuðli í auknum mæli að því að draga úr félagslegri einangrun umönnunaraðila.
3. Verður frítekjumark skv. 2. mgr. 22. gr. laga nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, hækkað svo að foreldrar geti sinnt námi eða vinnu að hluta?
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að greiðslur umönnunarstyrks verði óskertar þrátt fyrir atvinnuþátttöku eða nám umönnunaraðila og að frítekjumarkið verði því afnumið.