Ferill 486. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1000 — 486. mál.
Svar
félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur um kærur til úrskurðarnefndar velferðarmála vegna ákvarðana Sjúkratrygginga Íslands.
1. Hversu margar kærur bárust úrskurðarnefnd velferðarmála vegna ákvarðana Sjúkratrygginga Íslands frá ársbyrjun 2016 til ársloka 2021, sundurliðað eftir árum?
Árið 2016 barst 151 kæra.
Árið 2017 bárust 145 kærur.
Árið 2018 bárust 150 kærur.
Árið 2019 bárust 143 kærur.
Árið 2020 bárust 134 kærur.
Árið 2021 bárust 137 kærur.
2. Hversu margar af þeim kærum voru vegna ákvarðana í málum á grundvelli:
a. laga um sjúklingatryggingu, nr. 111/2000,
b. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008,
c. laga um slysatryggingar almannatrygginga, nr. 45/2015,
d. laga um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða, nr. 74/2020, sundurliðað eftir árum?
Á grundvelli laga um sjúklingatryggingu, nr. 111/2000:
Árið 2016 bárust 38.
Árið 2017 bárust 38.
Árið 2018 bárust 36.
Árið 2019 bárust 45.
Árið 2020 bárust 46.
Árið 2021 bárust 46.
Á grundvelli laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008:
Árið 2016 bárust 52.
Árið 2017 bárust 52.
Árið 2018 barst 71.
Árið 2019 bárust 59.
Árið 2020 bárust 59.
Árið 2021 bárust 56.
Á grundvelli laga um slysatryggingar almannatrygginga, nr. 45/2015:
Árið 2016 barst 61.
Árið 2017 bárust 55.
Árið 2018 bárust 43.
Árið 2019 bárust 39.
Árið 2020 bárust 30.
Árið 2021 bárust 35.
Á grundvelli laga um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða, nr. 74/2020:
Lögin tóku gildi 1. júlí 2020 og komu til framkvæmda 1. nóvember 2020. Engin kæra hefur borist úrskurðarnefndinni vegna laga þessara.
3. Hversu mörgum umræddra kærumála var vísað frá á þeim grundvelli að Sjúkratryggingar Íslands tóku mál kæranda til skoðunar á ný á meðan nefndin var með málið til umfjöllunar, sundurliðað eftir árum?
Árið 2016 var einu máli vísað frá á þessum grundvelli.
Árið 2017 var engu máli vísað frá á þessum grundvelli.
Árið 2018 var engu máli vísað frá á þessum grundvelli.
Árið 2019 var tveimur málum vísað frá á þessum grundvelli.
Árið 2020 var engu máli vísað frá á þessum grundvelli.
Árið 2021 var engu máli vísað frá á þessum grundvelli.
4. Hver var meðalmálsmeðferðartími umræddra kærumála, þ.e. frá því að kæra barst og þar til úrskurður lá fyrir, sundurliðað eftir árum, að undanskildum málum sem var vísað frá á þeim grundvelli að kæra barst eftir að kærufrestur rann út?
Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2016 var 7,9 mánuðir.
Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2017 var 6,8 mánuðir.
Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2018 var 3,4 mánuðir.
Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2019 var 4,1 mánuður.
Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2020 var 4,3 mánuðir.
Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2021 var 5,4 mánuðir.
5. Í hversu mörgum umræddra kærumála var málsmeðferðartími hjá nefndinni lengri en þrír mánuðir, sundurliðað eftir árum?
Árið 2016 var málsmeðferðartími í 93% mála lengri en þrír mánuðir.
Árið 2017 var málsmeðferðartími í 93% mála lengri en þrír mánuðir.
Árið 2018 var málsmeðferðartími í 46% mála lengri en þrír mánuðir.
Árið 2019 var málsmeðferðartími í 79% mála lengri en þrír mánuðir.
Árið 2020 var málsmeðferðartími í 81% mála lengri en þrír mánuðir.
Árið 2021 var málsmeðferðartími í 92% mála lengri en þrír mánuðir.
6. Hversu oft hafa Sjúkratryggingar Íslands höfðað dómsmál til að fá úrskurði nefndarinnar hnekkt, sundurliðað eftir árum og á grundvelli hvaða laga hin kærða ákvörðun var tekin?
Samkvæmt upplýsingum frá Sjúkratryggingum Íslands hefur stofnunin ekki höfðað dómsmál til ógildingar á úrskurðum úrskurðarnefndar velferðarmála.