Ferill 473. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1001 — 473. mál.
Svar
félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur um kærur til úrskurðarnefndar velferðarmála vegna ákvarðana umboðsmanns skuldara.
Tölulegar upplýsingar um kærur til úrskurðarnefndar velferðarmála voru teknar saman af úrskurðarnefnd velferðarmála. Upplýsingar um á hvaða ákvæði laganna hin kærða ákvörðun byggðist liggja ekki fyrir en úrskurðarnefndin vísar til birtra úrskurða nefndarinnar á urskurdir.is.
2016 bárust 36 kærur.
2017 bárust 20 kærur.
2018 bárust 9 kærur.
2019 bárust 7 kærur.
2020 bárust 8 kærur.
2021 bárust 4 kærur.
2. Hversu mörgum umræddra kærumála var vísað frá á þeim grundvelli að umboðsmaður skuldara tók mál kæranda til skoðunar á ný á meðan nefndin var með málið til umfjöllunar, sundurliðað eftir árum?
Árið 2016 var engu máli vísað frá á þessum grundvelli.
Árið 2017 var einu máli vísað frá á þessum grundvelli.
Árið 2018 var engu máli vísað frá á þessum grundvelli.
Árið 2019 var engu máli vísað frá á þessum grundvelli.
Árið 2020 var einu máli vísað frá á þessum grundvelli.
Árið 2021 var engu máli vísað frá á þessum grundvelli.
3. Hver var meðalmálsmeðferðartími umræddra kærumála, þ.e. frá því að kæra barst og þar til úrskurður lá fyrir, sundurliðað eftir árum, að undanskildum málum sem var vísað frá á þeim grundvelli að kæra barst eftir að kærufrestur rann út?
Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2016 var 10,8 mánuðir.
Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2017 var 3,4 mánuðir.
Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2018 var 1,9 mánuðir.
Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2019 var 2,8 mánuðir.
Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2020 var 2,3 mánuðir.
Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2021 var 2,3 mánuðir.
4. Í hversu mörgum umræddra kærumála var málsmeðferðartími hjá nefndinni lengri en þrír mánuðir, sundurliðað eftir árum?
2016 var málsmeðferðartími í 100% mála lengri en þrír mánuðir.
2017 var málsmeðferðartími í 67% mála lengri en þrír mánuðir.
2018 var málsmeðferðartími í 0% mála lengri en þrír mánuðir.
2019 var málsmeðferðartími í 50% mála lengri en þrír mánuðir.
2020 var málsmeðferðartími í 0% mála lengri en þrír mánuðir.
2021 var málsmeðferðartími í 16% mála lengri en þrír mánuðir.
5. Hversu oft hefur umboðsmaður skuldara höfðað dómsmál til að fá úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála hnekkt, sundurliðað eftir árum?
Umboðsmaður skuldara hefur aldrei höfðað dómsmál til að fá úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála hnekkt.
6. Hversu oft hafa aðrir en umboðsmaður skuldara höfðað dómsmál til að fá úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála hnekkt, sundurliðað eftir árum og aðilum?
Ráðuneytið hefur ekki upplýsingar um hvort aðrir en umboðsmaður skuldara hafi höfðað dómsmál til að fá úrskurði nefndarinnar hnekkt.