Ferill 490. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1002  —  490. mál.




Svar


félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur um kærur til úrskurðarnefndar velferðarmála vegna ákvarðana sveitarfélaga.


     1.      Hversu margar kærur bárust úrskurðarnefnd velferðarmála vegna ákvarðana sveitarfélaga og eftir atvikum viðkomandi nefnda þeirra frá ársbyrjun 2016 til ársloka 2021, sundurliðað eftir árum?
    2016 bárust 52 kærur.
    2017 bárust 33 kærur.
    2018 barst 31 kæra.
    2019 bárust 40 kærur.
    2020 bárust 53 kærur.
    2021 bárust 49 kærur.

     2.      Hversu margar af þeim kærum voru vegna ákvarðana í málum á grundvelli:
                  a.      laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991,
                  b.      laga um húsnæðismál, nr. 44/1998,
                  c.      laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018, eða eftir atvikum laga um málefni fatlaðs fólks, nr. 59/1992,
        sundurliðað eftir árum og sveitarfélögum?

    a.    2016 bárust 32 kærur.
              2017 bárust 17 kærur.
              2018 bárust 23 kærur.
              2019 bárust 23 kærur.
              2020 bárust 39 kærur.
              2021 bárust 40 kærur.
    b.    2016 barst engin kæra.
              2017 barst engin kæra.
              2018 barst engin kæra.
              2019 barst engin kæra.
              2020 barst engin kæra.
              2021 barst engin kæra.
    c.    Upplýsingar um hvaða sveitarfélög eru undir í úrskurðum liggja ekki fyrir. Vísað er til birtra úrskurða nefndarinnar á www.urskurdir.is.
              2016 bárust 13 kærur.
              2017 bárust 10 kærur.
              2018 bárust 7 kærur.
              2019 bárust 15 kærur.
              2020 bárust 14 kærur.
              2021 bárust 8 kærur.

     3.      Hversu mörgum umræddra kærumála var vísað frá á þeim grundvelli að viðkomandi sveitarfélag tók mál kæranda til skoðunar á ný á meðan nefndin var með málið til umfjöllunar, sundurliðað eftir árum og sveitarfélögum?
     Upplýsingar um hvaða sveitarfélög eru undir í úrskurðum liggja ekki fyrir. Vísað er til birtra úrskurða nefndarinnar á www.urskurdir.is.
    Árið 2016 var engu máli vísað frá á þessum grundvelli.
    Árið 2017 var einu máli vísað frá á þessum grundvelli.
    Árið 2018 var einu máli vísað frá á þessum grundvelli.
    Árið 2019 var engu máli vísað frá á þessum grundvelli.
    Árið 2020 var engu máli vísað frá á þessum grundvelli.
    Árið 2021 var engu máli vísað frá á þessum grundvelli.

     4.      Hver var meðalmálsmeðferðartími umræddra kærumála, þ.e. frá því að kæra barst og þar til úrskurður lá fyrir, sundurliðað eftir árum, að undanskildum málum sem var vísað frá á þeim grundvelli að kæra barst eftir að kærufrestur rann út?
    Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2016 var 3,3 mánuðir.
    Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2017 var 3,4 mánuðir.
    Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2018 var 3,7 mánuðir.
    Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2019 var 3,8 mánuðir.
    Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2020 var 3,6 mánuðir.
    Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2021 var 3,5 mánuðir.

     5.      Í hversu mörgum umræddra kærumála var málsmeðferðartími hjá nefndinni lengri en þrír mánuðir, sundurliðað eftir árum?
    2016 var málsmeðferðartími í 59% mála lengri en þrír mánuðir.
    2017 var málsmeðferðartími í 57% mála lengri en þrír mánuðir.
    2018 var málsmeðferðartími í 76% mála lengri en þrír mánuðir.
    2019 var málsmeðferðartími í 74% mála lengri en þrír mánuðir.
    2020 var málsmeðferðartími í 80% mála lengri en þrír mánuðir.
    2021 var málsmeðferðartími í 60% mála lengri en þrír mánuðir.

     6.      Hversu oft hafa sveitarfélög höfðað dómsmál til að fá úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála hnekkt, sundurliðað eftir árum og sveitarfélögum og á grundvelli hvaða laga hin kærða ákvörðun var tekin?
         Ekki eru fyrirliggjandi upplýsingar um hvort sveitarfélög hafa höfðað mál til að fá úrskurðum úrskurðarnefndar velferðarmála hnekkt. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu borgarlögmanns hefur Reykjavíkurborg ekki höfðað nein dómsmál á þessu tímabili til að fá úrskurðum úrskurðarnefndar velferðarmála hnekkt.