Ferill 673. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1006 — 673. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um samþættingu og aðkomu stjórnvalda að endurgerð Maríu Júlíu BA-36.
Frá Lilju Rafneyju Magnúsdóttur.
1. Telur ráðherra fýsilegt að veita verkefni Hollvinasamtaka um Maríu Júlíu BA-36, sem lýtur að endurgerð og nýju hlutverki skipsins, brautargengi í samstarfi við þau ráðuneyti og/eða undirstofnanir þeirra sem verkefninu tengjast á einn eða annan hátt?
2. Sér ráðherra, í ljósi þess að verkefnið tengist fjölda ráðuneyta og undirstofnunum þeirra, möguleika á því að samþætta verkstjórn undir einu ráðuneyti og/eða hafa með því yfirumsjón?
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.