Ferill 674. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1007  —  674. mál.




Fyrirspurn


til menningar- og viðskiptaráðherra um endurgerð skipsins Maríu Júlíu BA-36.

Frá Lilju Rafneyju Magnúsdóttur.


    Telur ráðherra fýsilegt að veita verkefni Hollvinasamtaka um Maríu Júlíu BA-36, sem lýtur að endurgerð og nýju hlutverki skipsins, brautargengi í samstarfi við þau ráðuneyti og/eða undirstofnanir þeirra sem verkefninu tengjast á einn eða annan hátt í ljósi þess að markmið verkefnisins er m.a. að varðveita menningararfleifð skipsins?


Skriflegt svar óskast.


Greinargerð.

    Frá árinu 2003 hafa ýmis áhugafélög staðið vörð um skipið Maríu Júlíu, nú síðast Hollvinasamtök um Maríu Júlíu BA-36. Þau eru sannfærð um menningarlegt mikilvægi verkefnisins, en baráttan hefur staðið yfir á annan áratug og verkefnið hlotið um 20 millj. kr. í opinbera styrki á þeim tíma. Verkefnið hefur víða verið kynnt og því komið á framfæri við nokkur ráðuneyti. Markmiðið með því er að endurbyggja skipið og finna því nýtt hlutverk sem því sæmir, ýmist til orkuskiptarannsókna, sem skólaskip, rannsóknaskip eða til að taka á móti opinberum gestum, ásamt því að varðveita menningararfleifð þessa fyrsta björgunarskips Íslands.