Ferill 680. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Prentað upp.

Þingskjal 1013  —  680. mál.
Leiðréttur texti.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um aðför í umgengnismálum.

Frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur.


     1.      Hversu oft á sl. fimm árum hefur umgengni, lögheimili og forsjá verið komið á með aðför skv. VII. og VIII. kafla barnalaga, nr. 76/2003? Óskað er eftir sundurliðun eftir því hvort aðför var beitt til að framfylgja úrskurði um lögheimili, forsjá eða umgengni.
     2.      Í hve mörgum tilvikum, þar sem umgengni, lögheimili eða forsjá var komið á með aðför á sl. fimm árum, hafði því verið borið við að framkvæmdin væri í andstöðu við vilja barnsins sjálfs?


Skriflegt svar óskast.