Ferill 361. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1016  —  361. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur um dvalar- og atvinnuréttindi fyrir ungt fólk.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Stendur til hjá ráðuneytinu að jafna stöðu ungs fólks á Íslandi með því að hefja í samvinnu við dómsmálaráðuneytið vinnu við gerð samninga um vegabréfsáritun sem varða dvalar- og atvinnuréttindi fyrir ungt fólk við þær þjóðir sem nágrannar okkar hafa samið við? Ef svo er, hvenær og hvernig ætlar ráðherra að ná þeim markmiðum?

    Lög um útlendinga, nr. 80/2016, og lög um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002, heimila útgáfu atvinnuleyfa til eins árs að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, á grundvelli samninga við erlend ríki um vinnudvöl fólks á aldrinum 18–26 ára. Utanríkisþjónustan annast í umboði forseta samningagerð við önnur ríki, sbr. 2. mgr. 1. gr. laga um utanríkisþjónustu Íslands, nr. 39/1971. Ísland gerði slíkan samning við Japan árið 2018 en gildandi lög um útlendinga og lög um atvinnuréttindi útlendinga setja of þröngar skorður til að geta uppfyllt skuldbindingar samkomulags (e. memorandum of understanding) við Bretland um vinnudvöl ungs fólks, sem undirritað var sumarið 2021. Það gekk í gildi til bráðabirgða að hluta um sl. áramót og er nú beðið lagabreytinga.
    Til þess að hægt sé að standa við skuldbindingar samkomulagsins við Bretland lagði þáverandi dómsmálaráðherra fram frumvarp á síðasta löggjafarþingi sem kveður á um breytingar á lögum um útlendinga, nr. 80/2016, og lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002 (151. löggjafarþing, þskj. 1029, 602. mál), en það náði ekki fram að ganga.
    Eins og fram kemur í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn um hliðstætt málefni á yfirstandandi löggjafarþingi (þskj. 530, 314. mál), kvaðst ráðherrann ætla að leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um útlendinga, nr. 80/2016, vegna Brexit – Youth Mobility Scheme. Frumvarpið er á þskj. 839, 597. mál. Þar er gert ráð fyrir að aldurshámarkið verði hækkað úr 26 árum í 31 ár og að heimilt verði að framlengja dvalar- og atvinnuréttindi um allt að eitt ár.
    Ef frumvarpið nær fram að ganga fá íslensk stjórnvöld meira svigrúm við samningsgerð við önnur ríki en gildandi lög heimila varðandi aldur og tímalengd vinnudvalar ungs fólks hér á landi. Lagabreytingin gæti þannig liðkað fyrir viðræðum um samninga við ríki sem önnur Norðurlönd hafa samið við, svo sem Kanada, Ástralíu, Nýja-Sjáland og Argentínu, sem eru ríki sem Danmörk, Noregur og Svíþjóð hafa gert sambærilega samninga við. Samkomulög Danmerkur og Noregs við Kanada miðast þó við enn hærri aldursmörk, þ.e. 18–35 ára aldur. Einnig gerir samkomulag Noregs við Kanada ráð fyrir sérstökum dvalar- og atvinnuleyfum fyrir háskólanema og nýútskrifaða til að öðlast starfsreynslu á sínu sviði. Einstök Norðurlönd hafa gert samninga um vinnudvöl ungs fólks við fleiri ríki og sjálfsstjórnarsvæði, t.d. Chile, Úrúgvæ, Suður-Kóreu og Hong Kong.
    Getið er um áform utanríkisráðherra um að gera samninga um vinnudvöl ungs fólks til að jafna stöðu ungs fólks á Íslandi samanborið við nágrannaríkin í skýrslu utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál 2021 (mars 2022), sem er fylgiskjal með skýrslu utanríkisráðherra um sama efni á yfirstandandi þingi (þskj. 634, 441. mál).
    Sem stendur eru viðræður við Kanada langt komnar en bíða ofangreindra lagabreytinga og Ástralía hefur samþykkt að hefja viðræður ef lagabreytingin gengur í gegn. Einnig hafa Argentína og Andorra óskað eftir viðræðum um samninga um vinnudvöl ungs fólks. Mikilvægt er þó að hafa í huga möguleg áhrif á innlendan vinnumarkað þegar kemur að viðræðum um slíka samninga.
    Í þessum málum hefur utanríkisráðuneytið átt náið og gott samstarf m.a. við dómsmálaráðuneyti, félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti, Útlendingastofnun og Vinnumálastofnun. Það hefur einnig upplýst hagsmunasamtök um stöðu mála.

    Alls fóru 3 vinnustundir í að taka svarið saman.