Ferill 683. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1017 — 683. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um framkvæmd laga um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna.
Frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur.
1. Hversu margir einstaklingar leituðu til kærunefndar jafnréttismála vegna hugsanlegra brota á lögum um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna, nr. 85/2018, frá gildistöku þeirra til dagsins í dag, og hverjar voru lyktir þeirra mála?
2. Hvaða leiðbeiningar fá aðilar sem leita til kærunefndarinnar vegna brota á lögunum?
3. Fá aðilar sem leita til nefndarinnar vegna brota á lögunum túlk og/eða aðra aðstoð við að leggja fram kæru hjá nefndinni?
Skriflegt svar óskast.