Ferill 484. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1023  —  484. mál.




Svar


félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur um kærur til úrskurðarnefndar velferðarmála vegna ákvarðana um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.


     1.      Hversu margar kærur bárust úrskurðarnefnd velferðarmála frá ársbyrjun 2016 til ársloka 2021 vegna ákvarðana Tryggingastofnunar ríkisins í málum á grundvelli laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr. 22/2006, sundurliðað eftir árum?
    2016 bárust tvær kærur.
    2017 bárust engar kærur.
    2018 bárust fjórar kærur.
    2019 bárust tvær kærur.
    2020 barst ein kæra.
    2021 barst ein kæra.

     2.      Hversu mörgum umræddra kærumála var vísað frá á þeim grundvelli að Tryggingastofnun ríkisins tók mál kæranda til skoðunar á ný á meðan nefndin var með málið til
umfjöllunar, sundurliðað eftir árum?
    Árið 2016 var engu máli vísað frá á þessum grundvelli.
    Árið 2017 var engu máli vísað frá á þessum grundvelli.
    Árið 2018 var engu máli vísað frá á þessum grundvelli.
    Árið 2019 var engu máli vísað frá á þessum grundvelli.
    Árið 2020 var engu máli vísað frá á þessum grundvelli.
    Árið 2021 var engu máli vísað frá á þessum grundvelli.

     3.      Hver var meðalmálsmeðferðartími umræddra kærumála, þ.e. frá því að kæra barst og þar til úrskurður lá fyrir, sundurliðað eftir árum, að undanskildum málum sem var vísað frá á þeim grundvelli að kæra barst eftir að kærufrestur rann út?
    Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2016 var 2,8 mánuðir.
    Ekki var úrskurðað í umræddum málum árið 2017.
    Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2018 var 3,4 mánuðir.
    Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2019 var 2,1 mánuður.
    Ekki var úrskurðað í umræddum málum árið 2020.
    Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2021 var 3,7 mánuðir.

     4.      Í hversu mörgum umræddra kærumála var málsmeðferðartími hjá nefndinni lengri en þrír mánuðir, sundurliðað eftir árum?
    2016 var málsmeðferðartími aldrei lengri en þrír mánuðir.
    Ekki var úrskurðað í umræddum málum árið 2017.
    2018 var málsmeðferðartími í 50% mála lengri en þrír mánuðir.
    2019 var málsmeðferðartími aldrei lengri en þrír mánuðir.
    Ekki var úrskurðað í umræddum málum árið 2020.
    2021 var málsmeðferðartími alltaf lengri en þrír mánuðir.

     5.      Hversu oft hefur Tryggingastofnun ríkisins höfðað dómsmál til að fá úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála hnekkt, sundurliðað eftir árum?

    Tryggingastofnun hefur ekki höfðað dómsmál til þess að fá hnekkt úrskurði nefndarinnar vegna ákvarðana um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega veikra barna.