Ferill 527. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1024 — 527. mál.
Svar
félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um flokkun greiðslna úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvers vegna eru greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum ekki flokkaðar sem atvinnutekjur vegna sérstaks frítekjumarks ellilífeyris skv. 1. mgr. 23. gr. laga um almannatryggingar þótt þær teljist til atvinnutekna samkvæmt lögum um tekjuskatt?
Í 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, er talið upp hvað teljist til skattskyldra tekna. Í A-lið 1. mgr. er m.a. kveðið á um að til skattskyldra tekna teljist endurgjald fyrir hvers konar vinnu, starf eða þjónustu sem innt er af hendi fyrir annan aðila, þ.m.t. eftirlaun og lífeyrir. Þrátt fyrir að ekki komi vinnuframlag á móti greiðslunum teljast eftirlaun og lífeyrir samkvæmt lögum um tekjuskatt vera endurgjald fyrir vinnu þótt ekki sé um beinar atvinnutekjur að ræða og að því leyti talin sem ígildi atvinnutekna, sbr. einnig 4. og 5. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda.
Þrátt fyrir þessa skattalegu meðferð getur hvorki talist sjálfgefið né skylt að sömu reglur gildi um þessar tegundir tekna þegar kemur að ákvörðun bóta samkvæmt lögum um almannatryggingar. Hefur löggjafinn þannig ákveðið að ekki skuli gilda sömu frítekjumörk um atvinnutekjur annars vegar og greiðslur úr lífeyrissjóðum hins vegar og hefur svo verið um langt skeið bæði hvað varðar greiðslur ellilífeyris og örorkulífeyris. Einnig má benda á að á undanförnum árum hefur áhersla stjórnvalda beinst að aukinni virkni aldraðra og atvinnuþátttöku þeirra og er nýleg hækkun frítekjumarks vegna atvinnutekna, sem nemur nú 2.400.000 kr. á ári, liður í þeirri viðleitni að aldraðir geti í auknum mæli verið virkir á vinnumarkaði.