Ferill 603. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1036  —  603. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Hildu Jönu Gísladóttur um meðferðarúrræði fyrir börn.


     1.      Hver er nýting og gagnsemi nýrrar afeitrunardeildar fyrir börn sem var opnuð á Landspítala í júní 2020?
    Alls hafa 17 innlagnir verið á afeitrunardeild ólögráða ungmenna frá opnun deildarinnar í júní 2020. Þar af hafa 15 innlagnir verið bráðainnlagnir og tvær voru skipulagðar. Útskrifuðust ungmennin á eftirfarandi staði til eftirmeðferðar eða eftirfylgdar: Stuðla eða annað vistunarúrræði á vegum Barnaverndarstofu, Vinakot, göngudeild BUGL, Krýsuvík eða í meðferð hjá SÁÁ. Alls voru fimm innlagnir á deildina árið 2021, þar af voru fjórar bráðainnlagnir og ein skipulögð innlögn án biðlista.
    Á þessum tveimur árum sem deildin hefur starfað hafa verið mun færri innlagnir en gert var ráð fyrir þegar þjónustuþarfir markhópsins voru greindar. Eflaust eru margar skýringar á því. Hugsanlega hefur heimsfaraldurinn haft áhrif, einnig getur verið að neysluvandi ungmenna sé ekki á því alvarleikastigi að þörf sé á innlögnum á afeitrunardeild nema í einstaka tilfellum. Tæplega tveggja ára starfsemistölur gefa sterkar vísbendingar um að deildin gagnist lítið í þjónustukeðju við börn/ungmenni með alvarlegan fíknivanda eins og staðan er nú.

     2.      Hvaða þjónusta stendur til boða fyrir þau börn sem áður nýttu SÁÁ?
    Í upplýsingum frá meðferðarsviði SÁÁ kemur fram að frá aldamótum hefur dregið úr þörf á meðferð vegna vímuefnavanda ungs fólks, sérstaklega barna. Fjöldi barna yngri en 18 ára sem sóttu þjónustu á Vog hefur minnkað verulega eins og sést í eftirfarandi töflu:

Ár 2018 2019 2020 2021
Fjöldi 48 36 12 9

    Þess ber að geta að ólögráða ungmenni eru ekki lögð inn á Vog nema með sérstökum undirbúningi og í samráði við foreldra/forráðamenn og ef við á, barnavernd. Lágmarksbið er eftir þjónustu og endurinnlagnir tryggðar eftir þörfum. Meðferðin er kynjaskipt og lögð áhersla á tengingu ungmenna í framhaldi innlagnar við þjónustu á göngudeild SÁÁ.
    Í eftirfarandi töflu má sjá fjölda barna yngri en 18 ára sem fengu meðferð á göngu- og/eða dagdeild SÁÁ árin 2018–2021:

Aldur ungmenna 2018 2019 2020 2021
11 1 0 0 0
12 1 0 0 0
13 0 0 0 0
14 0 1 1 2
15 1 1 0 2
16 2 11 6 13
17 9 7 11 24

     3.      Í þeim tilvikum þegar MST-meðferð (meðferðarúrræði á heimili barns) hentar ekki, eru þá önnur úrræði fullnægjandi að mati heilbrigðisyfirvalda og er framboðið nægilegt?
    Möguleiki er fyrir hendi fyrir barnavernd um land allt að vera í samstarfi annars vegar við afeitrunardeild ólögráða ungmenna á Landspítala og hins vegar við SÁÁ um innlögn til afeitrunar, meðferðar og tengingar við viðeigandi eftirfylgdarúrræði ef þörf er á.
    Þá er rétt að benda á að frá nóvember 2020 hefur SÁÁ, samkvæmt samningi við Barnaverndarstofu, veitt sérhæfða heilbrigðisþjónustu fyrir börn í neyðarvistun á Stuðlum. Um kaup á afmarkaðri útkallsþjónustu og föstum vitjunum lækna og hjúkrunarfræðinga er að ræða.