Ferill 665. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1037 — 665. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Lilju Rannveigu Sigurgeirsdóttur um greiðsluþátttöku vegna blóðskilunarmeðferðar.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hefur ráðherra í hyggju að hækka greiðsluþátttöku ríkisins í ferðakostnaði sjúklinga sem eru með nýrnabilun og þurfa á blóðskilunarmeðferð að halda? Ef svo er, hvenær mun slík breyting taka gildi?
Í 6. mgr. reglugerðar nr. 1140/2019, um ferðakostnað sjúkratryggðra og aðstandenda þeirra innanlands, er kveðið á um réttindi sjúkratryggðra sem þurfa á tíðri blóðskilunarmeðferð að halda, a.m.k. tvö skipti í viku. Greiðsluþátttaka ríkisins í ferðakostnaði sjúklinga sem eru með nýrnabilun var aukin 26. apríl 2022 með (4.) breytingu á reglugerð nr. 1140/2019, um ferðakostnað sjúkratryggðra og aðstandenda þeirra innanlands. Eftir breytinguna greiða sjúkratryggingar 95% kostnaðar í stað ¾ hluta kostnaðar.