Ferill 612. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1038  —  612. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Bjarna Jónssyni um skort á læknum og öðru heilbrigðisstarfsfólki á landsbyggðinni.


     1.      Hvernig hyggst ráðherra bregðast við bráðum skorti á læknum og heilbrigðisstarfsfólki víða á landsbyggðinni? Telur ráðherra koma til álita að grípa til sértækra aðgerða og ef svo er, hvernig og hvar telur ráðherra brýnast að ráðast í slíkar aðgerðir með vísan til búsetuöryggis?
    Heilbrigðisstarfsmenn eru takmörkuð auðlind um allan heim og því alþjóðlegt viðfangsefni að tryggja næga mönnun innan heilbrigðiskerfisins. Menntun, þekking og hæfni heilbrigðisstarfsmanna eru þar lykilþættir. Til að tryggja sem best aðgengi að heilbrigðisþjónustunni er mikilvægt að nýta fjölþættar leiðir og hámarka nýtingu þekkingar heilbrigðisstarfsmanna í veitingu þjónustunnar.
    Vegna mikilvægis þessa þáttar heilbrigðisþjónustunnar hefur verið gripið til ýmissa aðgerða. Á síðasta ári var komið á fót sérstökum samráðsvettvangi, landsráði um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu. Í landsráðinu eru ýmsir sérfræðingar skipaðir af heilbrigðisráðherra en ráðið er skipað fulltrúum frá heilbrigðisstofnunum og heilsugæslu, ráðuneytum menntamála, háskólasamfélaginu, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og embætti landlæknis. Því er ætlað að vera ráðgefandi við undirbúning ákvarðana heilbrigðisráðherra á sviði mönnunar og menntunar í heilbrigðisþjónustu og vera samráðsvettvangur á þessu sviði með virku samráði, t.d. við sjúklingasamtök, fagfélög, menntastofnanir og aðra hagsmunaaðila.
    Frá stofnun landsráðs um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu hafa mörg verkefni verið sett í gang. Meðal annars er unnið að gagnaöflun og greiningarvinnu er varðar heilbrigðisstéttir um allt land. Tvö stærstu verkefnin sem eru í vinnslu snúa að fjármögnun sérnáms til heilbrigðisstofnana og verkaskiptingu heilbrigðisstétta svo að þekking þeirra nýtist sem best. Ef sú greiningarvinna sem er í gangi í heilbrigðisráðuneytinu í samstarfi við landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu kemur til með að leiða í ljós að grípa þurfi til sértækra aðgerða er varða mönnun og menntun heilbrigðisstarfsfólks með tilliti til landsins alls þá kemur til greina að skoða það að ráðast í slíkar sértækar aðgerðir. Einn möguleikinn á þess háttar aðgerð væri að nýta lög nr. 60/2020, um menntasjóð íslenskra námsmanna, en VII. kafli fjallar um heimildir fyrir sértækar aðgerðir vegna tiltekinna námsgreina og vegna námsgreina á sérstökum svæðum sem viðkomandi ráðherra 1 getur ákveðið að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
    Til að nýta sem best sérþekkingu fagstétta og jafna aðgang að þeim um allt land er einnig horft til samstarfs og uppbyggingar ýmissa teyma sérgreina eða í kringum sjúkdóma sem jafnvel starfa á landsvísu. Uppbygging almennra og sérhæfðra geðheilsuteyma heilsugæslunnar er hluti af slíku fyrirkomulagi.
    Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu gegnir líka mikilvægu hlutverki að þessu leyti innan heilsugæslu á landsvísu við að leiða faglega þróun og samræma og samhæfa verklag milli fagfólks, ásamt því að vinna að gæðaþróun og framförum í heilsugæslu.
    Stefnt er að bættu aðgengi með aukinni fjarheilbrigðisþjónustu um allt land. Markviss skref hafa verið stigin til að greiða fyrir þeirri þróun, bæði hvað varðar lagaumgjörð og innleiðingu á nýrri tækni ásamt viðbótarfjármagni til verkefnisins. Sem stendur er unnið að greiðslufyrirkomulagi fyrir fjarheilbrigðisþjónustu með tilheyrandi breytingum á reglugerð og greiðslukerfum. Jafnframt er til skoðunar hvaða hvata sé nauðsynlegt að setja inn í kerfið til að stýra áherslum á hverjum stað.
    Til framtíðar er horft til þess að efla samstarf heilbrigðisstofnana um allt land, t.d. með samningum milli heilbrigðisstofnana eða við einkaaðila um veitingu á afmarkaðri heilbrigðisþjónustu. Sú þjónusta er þá ýmist veitt á staðnum eða með fjarheilbrigðistækni, þ.e. fjarheilbrigðisþjónustu. Þá er um að ræða samninga sem sérstaklega koma til móts við það samfélag sem þiggur þjónustuna og styður við búsetuöryggi svæðisins. Inn í slíkt þjónustufyrirkomulag geta fléttast störf án staðsetningar.

     2.      Hver er staða þeirra aðgerða sem vísað er til í kafla A.6. Héraðslækningar í þingsályktun nr. 24/148, um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018–2024? Hefur heilsugæslulæknum fjölgað á landsbyggðinni fyrir tilstilli verkefnisins?
    Markmið verkefnisins var að fjölga heilsugæslulæknum á landsbyggðinni með því að koma á tveggja ára námi sem myndi búa heilsugæslulækna undir starf í dreifbýli. Tillaga að fjármögnun aðgerðarinnar var 2,5 milljónir úr byggðaáætlun. Undirbúningur verkefnisins fór hins vegar ekki eins og að var stefnt í upphafi svo að aðgerðin fór aldrei af stað. Þar sem aðgerðin var ekki virk var að lokum ákveðið að taka hana út úr nýrri byggðaáætlun, a.m.k. í bili. Það má svo endurskoða ef og þegar ástæða er til.
    Mikilvægi heilsugæslulækna og heimilislækna á landsbyggðinni er hins vegar óumdeilt og áhugi lækna á heimilislækningum er mikill. Mikill skilningur er einnig á mikilvægi þess að tengja sérnám heimilislækna við heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Í haust er ráðgert að 94 sérnámslæknar verði í námi í heimilislækningum. Af þeim verða 36 í sérnámsstöðum á landsbyggðinni eða rúmlega 38% sérnámslæknanna. Eftirfarandi tafla sýnir dreifingu þeirra á heilbrigðisstofnanirnar sex, þ.e. Vesturland, Vestfirði, Norðurland, Austurland, Suðurland og Suðurnes.

HSV HVEST HSN HSA HSU HSS
2 1 14 5 7 7

    Verulegur hluti þessara 36 sérnámslækna kemur ýmist af landsbyggðinni eða er með sterk tengsl við hana þannig að væntingar standa til þess að landsbyggðin muni njóta starfa þeirra áfram þegar námi lýkur.

     3.      Hver er fjöldi starfandi lækna á landsbyggðinni? Svar óskast sundurliðað eftir starfsstöðvum og eftir því hvort læknar starfi í verktöku, hafi fasta búsetu í nágrenni starfsstöðvar og séu tiltækir á starfsstöð sinni allan ársins hring.
    Af heilbrigðisumdæmunum sjö teljast sex til landsbyggðarinnar. Í hverju heilbrigðisumdæmi er ein heilbrigðisstofnun sem ber ábyrgð á og skipuleggur heilbrigðisþjónustu í sínu heilbrigðisumdæmi. Þar er veitt fyrsta og annars stigs heilbrigðisþjónusta. Starfstöðvar heilbrigðisstofnananna eru 33 alls, sjö á Vesturlandi, tvær á Vestfjörðum, sjö á Norðurlandi, sex á Austurlandi, níu á Suðurlandi og tvær á Suðurnesjum. Auk þess bera heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni ábyrgð á rekstri mismunandi margra hjúkrunarrýma og hjúkrunarheimila.
    Til viðbótar heilbrigðisstofnununum sex er Sjúkrahúsið á Akureyri á landsbyggðinni. Það er kennslusjúkrahús og varasjúkrahús Landspítala.
    Allar heilbrigðisstofnanirnar veita ákveðna heilbrigðisþjónustu allan sólarhringinn allan ársins hring. Skipulag læknisþjónustunnar getur verið breytilegt milli stofnana, tímabila innan ársins og sólarhringsins auk þess sem mismunandi vaktafyrirkomulag er notað til að tryggja sem best mönnun og aðgengi að læknum allan ársins hring eftir aðstæðum á hverjum stað. Þar koma til bæði staðarvaktir og bakvaktir og ný fjarheilbrigðistækni til að bæta aðgengi að þjónustu. Ráðningarsamband milli heilbrigðisstofnana og lækna getur líka verið breytilegt (fastráðning eða verktakar), bæði innan hvers árs og milli stofnana. Markmiðið er alltaf að tryggja mönnun og aðgengi að þjónustunni.
    Heildarfjöldi stöðugilda lækna á landsbyggðinni samkvæmt launakerfi ríkisins var 222,9 árið 2021, af þeim voru 144,9 stöðugildi á heilbrigðisstofnununum en 78 á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Að baki stöðugildunum á heilbrigðisstofnununum eru 350 kennitölur en 181 kennitala er að baki stöðugildunum á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Heildarfjölda stöðugilda lækna á hverri heilbrigðisstofnun samkvæmt launakerfi ríkisins má sjá í eftirfarandi töflu:

Læknafélag
Íslands
Læknafélag Íslands
heilsugæslulæknar
Skurðlæknafélag
Íslands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands 19 3 3 25
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða 5 1 1 7
Heilbrigðisstofnun Norðurlands 24 13 0 37
Heilbrigðisstofnun Austurlands 16 1 17
Heilbrigðisstofnun Suðurlands 25 9 0 34
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 23 0 1 25
Alls 111,7 27,8 5,4 144,9

    Stærð heilbrigðisumdæmanna og fjarlægð frá stærri sjúkrahúsum, samgöngur og dreifing byggðar er þó mjög mismunandi og hefur eðli málsins samkvæmt áhrif á skipulag og þjónustuáskoranir heilbrigðisþjónustunnar í hverju umdæmi. Ákvörðun um fjölda og staðsetningu starfsstöðva lækna fellur þar undir. Byggðastofnun 2 er með mælaborð sem sýnir mælikvarða eftir landshlutum um hlutfall íbúa innan við 30 km frá heilsugæslustöð. Þar kemur fram að 91,5–100% íbúa landsins búa innan við 30 km frá heilsugæslustöð, sjá eftirfarandi:

Höfuðborgarsvæðið 100%
Suðurnes 100%
Vesturland 93,1%
Vestfirðir 93%
Norðurland vestra 91,5%
Norðurland eystra 98 6%
Austurland 96 6%
Suðurland 97 7%

    Upplýsingar um búsetu lækna liggja ekki fyrir. Hins vegar er ljóst að búseta og atvinnusvæði starfsfólks getur náð á milli heilbrigðisumdæma. Þannig er til dæmis nokkur fjöldi fólks sem býr á Vesturlandi, Suðurlandi og Suðurnesjum sem starfar á höfuðborgarsvæðinu og svo einnig í hina áttina. Samskonar breytileiki varðandi búsetu og starfsstöð á einnig við í öðrum landshlutum.
1    Ráðherra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
2     public.tableau.com/app/profile/byggdastofnun/viz/Mlikvarar/framfaersla