Ferill 693. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1041 — 693. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um betrun fanga.
Frá Evu Sjöfn Helgadóttur.
1. Hvernig er betrunarstefnu fanga framfylgt á Íslandi?
2. Hvernig er betrun mæld í réttarkerfinu? Er aðeins miðað við endurkomutíðni?
3. Hver hefur endurkomutíðni fanga verið sl. tíu ár?
4. Hversu mörg stöðugildi sálfræðinga eða annarra meðferðaraðila eru í fangelsum landsins? Óskað er eftir sundurliðun eftir fangelsum.
Skriflegt svar óskast.