Ferill 694. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1042  —  694. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um fanga.

Frá Evu Sjöfn Helgadóttur.


     1.      Hve margir fangar eru í fangelsum landsins? Svar óskast sundurliðað eftir kyni, aldri, ríkisfangi, hvort um endurkomu í fangelsi er að ræða og tegund afbrota sl. tíu ár.
     2.      Hve margir einstaklingar sem dæmdir hafa verið til fangelsisvistar eru á biðlista eftir að hefja afplánun? Svar óskast sundurliðað eftir kyni, aldri og tegund afbrota sl. tíu ár.


Skriflegt svar óskast.