Ferill 695. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1043  —  695. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Frá Evu Sjöfn Helgadóttur.


     1.      Hvernig vindur fram innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021?
     2.      Hvaða fösum innleiðingarinnar er lokið, hverjum er ólokið og hvenær má vænta þess að einstökum fösum verði lokið?
     3.      Hvaða forsendur liggja til grundvallar ákvörðunum um hvernig fösunum er forgangsraðað?
     4.      Hvaða nýju verkefnum hefur verið hrint í framkvæmd í tengslum við lögin og hvaða fjárveitingar hafa fylgt hverju verkefni?
     5.      Hvaða fjárveitingar hafa farið til sveitarfélaga frá samþykkt laganna og þar til nú, til að koma á fót úrræðum fyrir börn, þannig að málstjórar þjónustu í þágu farsældar barns hafi yfir úrræðum að ráða fyrir börn sem á þeim þurfa að halda?


Skriflegt svar óskast.